Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
6.9.2010
Flóamarkaður í Reykjadal á vegum Dalalæðanna
Kvenfélagið Dalalæðurnar sem skipað er sprækum konum úr Mosfellsdal hélt nú um helgina flóamarkað í Reykjadal til styrktar starfsseminni þar.
Vel tókst til og safnaðist fín upphæð sem fer beint í styktarsjóð Reykjadals en nú er orðið ljóst að nóg hefur safnast til að halda opnu í vetur og gott betur. Það fé sem safnast hefur umfram verður nýtt til uppbyggingar og betrumbóta á aðstöðu búðanna.
Við þökkum þessum vösku konum kærlega fyrir stuðninginn.
Leit












