Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

FRÉTTIR

6.9.2010

Útitónleikar í Reykjadal

Fimmtudagskvöldið 9. september kl. 20.00 verða haldnir útitónleikar í Reykjadal í Mosfellsdal.

Steindi Jr. mun kynna og munu fjölmargir tónlistamenn stíga á svið. Má þar nefna:
Gildruna, Diddú, Dúettinn Hljóm, Hafdísi Huld, Hreindísi Ylfu, Bermúda, Karlakór Kjalnesinga, Írisi Hólm og fleiri.

Miðar verða seldir við innganginn og er miðaverð 1500 kr. Allur ágóði tónleikanna rennur óskiptur til Reykjadals en allir sem skemmta og standa að tónleikunum gefa vinnu sína.


Taktu kvöldið frá og eigðu frábæra kvöldstund með frábærum listamönnum og styrktu gott málefni í leiðinni!


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati