Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
12.10.2011
Leifur Leifsson handhafi Kærleikskúlunnar
Afhending Kærleikskúlunnar fór fram að viðstöddu margmenni í Listasafni Reykjavíkur í gær. Kærleikskúla ársins var jafnframt frumsýnd en hún ber heitið SKAPAÐU ÞINN HEIM (DRAW YOUR OWN MAP) og er eftir Yoko Ono.
Það var hinn skeleggi Leifur Leifsson sem hlaut kúluna í ár og tók hann við kúlunni úr hendi Yoko Ono og Þórdísar Yurie Jónsdóttur. Yoko þarf vart að kynna en Þórdís er japönsk-íslensk 6 ára stúlka sem bæði hefur verið í þjálfun á Æfingastöðinni og einnig notið dvalar í Reykjadal.
Leifur hefur á engan hátt látið fötlun sína hindra sig í að láta drauma sína rætast en hann var á sínum tíma fyrsti maðurinn í hjólastól til að fara upp á Esjuna. Þar naut Leifur aðstoðar ófatlaðra einstaklinga en nú nýlega hóf hann að fara á fjöll með eigin handafli og fór m.a. á Snæfellsjökul sl. sumar. Árið 2004 gerði Leifur heimildarmynd í samstarfi við Evrópusambandið sem bar heitið Öryrkinn ósigrandi. Myndin sem var í kjölfarið tilnefnd til verðlauna, fjallaði um fatlað fólk í hjólastól og hvað fatlað fólk getur gert þrátt fyrir fötlun sína, sem er oft á tíðum það sama og ófatlaðir geta gert ef viljinn er fyrir hendi. Það er einmitt það sem Leifur hefur staðið fyrir og verið ötull við að koma á framfæri á námskeiðum sínum hjá SOF og þannig hefur hann verið ungu fólki mikilvæg fyrirmynd.
Styrktarfélagið telur Leif því vera vel að verðlaununum kominn og óskar honum hjartanlega til hamingju.
Fréttir og viðburðir
Leit












