Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
9.11.2011
Leppalúði - jólaórói SLF 2011
Leppalúði er jólaórói Styktarfélags lamaðra og fatlaðra 2011. Hér er kominn sjötti óróinn í seríuna en það eru þær Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir, hönnuður og Ingibjörg Haraldsdóttir, ljóðskáld sem leggja félaginu lið í ár með túlkun sinni á Leppalúða.

Frá upphafi hafa margir af þekktustu hönnuðum og skáldum okkar Íslendinga lagt félaginu lið við gerð óróanna. Þegar hafa Sigga Heimis og Sjón túlkað Kertasníki, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og Andri Snær Magnason túlkað Hurðaskelli, Katrín Ólína Pétursdóttir og Hallgrímur Helgason Grýlu, Hrafnkell Birgisson og Gerður Kristný Ketkrók og síðustu jól túlkuðu Snæfríð Þorsteins, Hildigunnur Gunnarsdóttir og Þórarinn Eldjárn Jólaköttinn.
ALLUR ÁGÓÐINN Í ÞÁGU FATLAÐRA BARNA OG UNGMENNA
Æfingastöðin sem rekin er af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra er langstærsti aðili í endurhæfingu barna og ungmenna á Íslandi. Þjónustuna nýta um 1200 börn árlega, mörg hver oft í viku.
Æfingastöðin gegnir því veigamiklu hlutverki í íslensku samfélagi og er starfið sem þar fer fram brýnt enda er markmið þjálfunarinnar að efla börn og ungmenni með skerta færni og stuðla að virkri þátttöku þeirra í samfélaginu. Allur ágóði af sölu óróanna rennur óskiptur til þróunar og eflingar þessa mikilvæga starfs.
ÓSLÓARTRÉÐ PRÝTT JÓLAÓRÓUM SLF
Óróar Styrktarfélagsins hafa undanfarin ár að prýtt Óslóartréð, jólatré Reykvíkinga og verið eina skrautið á trénu utan jólaljósanna.
ENSKIR OG ÍSLENSKIR BÆKLINGAR
Óróarnir eru framleiddir hjá Geislatækni í Garðabæ og pakkað af einstökum áhuga og natni hjá Vinnustofunni Ási. Verkefnið er því atvinnuskapandi auk þess að sameina íslenska hönnun, ritsnilld, menningararf og gott málefni.
Óróarnir koma í hentugri pakkningu sem passar í umslag. Þeim fylgja fallegir bæklingar á ensku og íslensku sem innihalda m.a. kvæðið sem Ingibjörg Haraldsdóttir orti um Leppalúða af þessu tilefni.
LEPPALÚÐI FÆST Í EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM DAGANA 5.- 19. DESEMBER
Casa - Skeifunni og í Kringlunni.
Epal - Skeifunni, Leifsstöð og Hörpu.
Kokka - Laugavegi
Kraum - Aðalstræti og Garðatorgi
Módern - Hlíðarsmára
Þjóðminjasafnið - Suðurgötu
Landsbyggðin:
Blóma og gjafabúðin - Sauðárkróki
Póley - Vestmannaeyjum
Valrós - Akureyri
Allar verslanirnar selja óróann án nokkurar þóknunar og leggja því málefninu mikilvægt lið.
Nánari upplýsingar hjá Berglindi Sigurgeirsdóttur, berglind@slf.is, s.535-0900.
Fréttir og viðburðir
Leit












