Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

FRÉTTIR

26.11.2011

Leppalúði prýðir Óslóartréð

 

Sunnudaginn 27. nóvember, fyrsta sunnudag í aðventu verða jólaljós Óslóartrésins við Austurvöll tendruð. Tréð er að þessu sinni prýtt Leppalúða, jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2011.

Leppalúði er sjötti óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélagsins og rennur allur ágóði af sölu hans til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Í óróanum fer saman íslenskur menningararfur, ritsnilld og hönnun - ásamt mikilsverðu málefni. Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir og Ingibjörg Haraldsdóttir leggja félaginu lið að þessu sinni með túlkun sinni á Leppalúða – Ingibjörg Hanna yrkir í stálið og Ingibjörg Haralds yrkir kvæði. Gunnar Eyjólfsson leikari mun frumflytja þetta nýja kvæði um Leppalúða á Aðventuhátíðinni.

?“slóartré

Sextíu ár eru liðin síðan íbúar Óslóar færðu Reykvíkingum fyrsta grenitréð að gjöf en tréð hefur ævinlega hefur verið sett upp á Austurvelli. Í mörg ár hefur verið til siðs að borgarbúar haldi upp á þessa vinargjöf fyrsta sunnudag í aðventu með bæði hátíðlegum söng og skemmtilegum uppákomum og á þessu afmælisári verður engin undantekning gerð þar á.

Gunnar Halle trompetleikari frá Noregi er sérstakur gestur Aðventuhátíðar og leikur hann undir jólasöng Dómkirkjukórsins kl. 16:00, að undangengnum jólatónlistarflutningi Lúðrasveitar Reykjavíkur sem hefst kl. 15.30. Þess má geta að Gunnar heldur kvöldið áður, laugardaginn 26. nóvember, aðventutónleika í Dómkirkjunni í Reykajvík kl. 18 ásamt píanóleikaranum Espen Eriksen. Er það norska sendiráðið á Íslandi sem hefur veg og vanda að komu þeirra hingað.

Það er Toril Berge, formaður borgarstjórnarflokks Venstre í Ósló, sem færa mun borgarstjóra vorum Jóni Gnarr og Reykvíkingum  tréð að gjöf og verður það hin 8 ára gamla norsk-íslenska Sara Lilja Ingólfsdóttir Haug sem fær þann heiður að tendra ljósin á trénu.

Góðir gestir munu einnig birtast á sviðinu við Austurvöll. Gói og Þröstur Leó mun flytja brot úr ævintýrinu um Eldfærin sem og úr Baunagrasinu sem frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu í febrúar. Að lokum munu Stúfur, Gluggagægir og Hurðaskellir kíkja við en þeir hafa laumað sér í bæinn til að segja börnunum sögum og syngja jólalög.

Óslóartréð breiðir faðminn á móti öllum bæjarins börnum. Dagskrá Aðventuhátíðar verður túlkuð á táknmáli, heitt kakó og kaffi mun verma kalda kroppa og bílastæðahúsið í Ráðhúsinu verður opið til þess að auðvelda fjölskyldufólki og öðrum aðgengi að hátíðarsvæðinu. Kynnir á dagskránni er Gerður G. Bjarklind.

Sú athöfn að tendra ljósin á jólatrénu á Austurvelli hefur um langa hríð skipað sérstakan sess í hugum borgarbúa sem ómissandi hluti af jólaundirbúningnum.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati