Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

FRÉTTIR

23.12.2011

Starfsmenn Íslandsbanka styrkja Æfingastöðina

Starfsmenn markaða- og fjárstýringar Íslandsbanka færðu í dag Æfingastöðinni rúmar 300.000 kr. að gjöf. 

Vildu starfsmenn með þessu láta gott af sér leiða en féð sem starfsfólkið gaf var tilkomið vegna fjáröflunarleiks sem verið hefur í gangi um nokkurt skeið meðal starfsmanna Markaða- og fjárstýringar Íslandsbanka.

Sögðu starfsmenn bankans að mikill samhljómur hafi verið um að láta féð renna til Æfingastöðvarinnar og vonuðust þeir til að þetta framlag myndi kom að góðum notum í því öfluga starfi sem þar er unnið.

Við þökkum starfsmönnum markaða- og fjárstýringar Íslandsbanka kærlega fyrir þessa veglegu gjöf sem á svo sannarlega eftir að koma að góðum notum.

starfsmenn íslandsbanka veita styrk


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati