Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
FRÉTTIR
15.2.2012
Óliver Tumi afhendir SLF ágóða af bók sinni
Óliver Tumi Auðunsson 6 ára afhendi á dögunum Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra hluta af ágóða af sölu bókar sinnar „Óliver Tumi segðu mér sögu“.
Frumsamdar sögur Ólivers Tuma eru ævintýralega skemmtilegar en hann byrjaði að semja þær á frístundaheimilinu í Sæmundarskóla og aðstoðaði starfsmaður þess hann við að skrá þær niður. Óliver er líklega yngsti rithöfundur landsins, aðeins sex ára gamall, en hann nýtur aðstoðar myndlistamannsins Halls Karls Hinrikssonar. Óliver ákvað sjálfur að gefa sögurnar út og í sameiningu við foreldra sína ákvað hann að hluti ágóðans rynni til Styrktarfélagsins. Styrktarfélagið þakkar Óliver Tuma og fjölskyldu hans innilega fyrir þeirra rausnarlega framlag í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Bókina má enn fá í afgreiðslu félagsins að Háaleitisbraut 13 og kostar hún 1500 kr.
Óliver tumi kom við hjá okkur ásamt systkinum sínum
Hér má lesa eina sögu úr bók Ólivers:
Ormurinn mikli og þrír strákar
„Einu sinni fyrir langa löngu átti kona þrjá stráka og eina stúlku. Einu sinni sem oftar fóru strákarnir út að leika í fótbolta, þeim þótti fótbolti skemmtilegur. Í þetta sinn skoraði elsti bróðirinn mark. Þá reiddist litli bróðir við bróðirinn sem var næst elstur og sagði „Þetta var þér að kenna, þú varst fyrir mér.“ Þá birtist allt í einu lítill bókaormur og hrópaði til strákanna. „Þið megið ekki vera í fótbolta. Því þá fer allt að snúast um fótbolta, þá hættir allt annað að vera til.“ Strákarnir urðu hræddir og litli bróðir fór að gráta. Þá sagði bókaormurinn við þá; „ég skal sýna ykkur alvöru galdra.“ Svo blés hann á fótboltann sem skrúfaðist uppí loftið upp til tunglsins. Hæ hó úti er ævintýri.“
Fréttir og viðburðir
Leit












