Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
SJÓÐUR KRISTÍNAR BJÖRNSDÓTTUR
Sjóður Kristínar Björnsdóttur fyrrverandi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna:
Sjóðurinn var stofnaður 1997. Stofnframlag sjóðsins var dánargjöf Kristínar samtals að upphæð kr. 26,1 milljón. Helmingur framlagsins var í upphafi notaður til að greiða stofnkostnað nýrrar og fullkominnar sundlaugar að Háaleitisbraut. Sundlaugin var tekin í notkun árið 1997 og var byggð sérstaklega með þarfir fatlaðra í huga. Öll aðstaða við sundlaugina er hönnuð þannig að auðvelt er fyrir starfsfólk að sinna starfi sínu í þjálfun.
Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins fyrst og fremst að aðstoða fötluð börn og ungmenni s.s. til menntunar og sérmenntunar í samræmi við hæfni þeirra og möguleika, þannig að þau fái sem líkasta uppvaxtarmöguleika og heilbrigð börn.
Stjórn sjóðsins skipa Vilmundur Gíslason, Þórir Þorvarðarson og Ársæll Arnarson.
Úthlutað er úr sjóðnum árlega (venjulega í maí) og er auglýst í dagblöðunum eftir umsóknum. Hægt er að sækja um hvenær sem er en umsóknir bíða þá næstu úthlutunar.
Umsókn um styrki úr sjóðnum, í samræmi við ofnagreind markmið, ásamt upplýsingum um umsækjendur sendist:
Stjórn Sjóðs Kristínar Björnsdóttur,
fyrrverandi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Háaleitisbraut 11- 13
105 Reykjavík.
Kristín Björnsdóttir, stutt æviágrip.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri SLF, í síma 535 0900
Fréttir og viðburðir
6.9.2010
Útitónleikar í Reykjadal
Leit










