Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra var stofnað 2. mars 1952. Það hefur það meginmarkmið að stuðla að aukinni orku, starfshæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna.

Helstu verkefni:

  • að vera frumkvöðull að nýjungum í þjónustu við fötluð börn og ungmenni á Íslandi           
  • rekstur Æfingastöðvarinnar að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík en þar fer fram viðamesta sjúkra- og iðjuþjálfun barna á landinu 
  • rekstur Æfingastöðvarinnar í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði en þar fer fram iðjuþjálfun barna
  • rekstur sumar- og helgardvalar fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykjadal í Mosfellsbæ
  • rekstur sumardvalar fyrir fötluð börn og ungmenni að Laugalandi í Holtum

Vissir þú að:

  • fyrsta verkefni félagsins var stofnun og rekstur Æfingastöðvarinnar í febrúar 1956
  • hjá félaginu starfa um 40 manns þar af 25 sjúkra- og iðjuþjálfar
  • um 850 einstaklingar fá þjónustu þjálfara á hverju ári
  • aðstaða til sjúkraþjálfunar og iðjuþjálfunar er með því besta sem gerist
  • félagið hefur rekið sumar- og helgardvöl í Reykjadal, Mosfellsbæ frá árinu 1963
  • árlega koma um 200 fötluð börn og ungmenni til sumardvalar í Reykjadal og svipaður fjöldi kemur í helgardvöl á veturna
  • árlega koma um 60 fötluð börn og ungmenni til sumardvalar að Laugalandi í Holtum
  • sumardvalargestir koma frá yfir 26 sveitarfélögum alls staðar að af landinu
  • á hverju sumri eru ráðnir yfir 70 nemar úr framhaldsskólum og háskólum til starfa við sumardvalir félagsins í Reykjadal og Laugalandi í Holtum

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati