Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Siðareglur

 

Starfsfólk Styrktarfélagsins og stofnana þess skal leitast við í störfum sínum að gæta

  • Réttlætis
    Réttlæti felur í sér að komið sé fram við einstaklinga af sanngirni, tillitsemi og fordómaleysi. 
  • Mannvirðingar
    Mannvirðing felur í sér að komið sé fram við alla einstaklinga sem manneskjur með réttindi sem ber að virða og verja. Tekið sé tillit til ólíkra sjónarmiða og þau virt.
  • Ábyrgðar
    Ábyrgð felur í sér að gætt sé velferðar notenda og samstarfsfólks, gætt sé heiðarleika og trúnaðar og farið sé með ábyrgum hætti með fjármuni félagsins.

 

Gildi Æfingastöðvarinnar: virðing, samvinna, lífsgæði

Fólk sem vinnur á Æfingastöðinni ber virðingu fyrir margbreytileika og mismunandi sjónarhornum. Það veit að börn og fjölskyldur eru sérfræðingar í sínu lífi og þekkja best eigin aðstæður, getu og þarfir.

Aðeins með náinni samvinnu við barnið, fjölskylduna og aðra sem veita þeim þjónustu eða umönnun er mögulegt að öðlast heildstæða sýn á þarfir barnsins og miða þjónustuna við getu þess, áhuga og umhverfi. Með samvinnu getur barnið náð lengra.

Takmark þjónustu Æfingastöðvarinnar að efla sjálfstæði og þátttöku barnsins og fjölskyldunnar svo þau blómstri og njóti lífsins á sínum forsendum.

Leiðarljós í öllum samskiptum, þjónustu og stefnumótun Æfingastöðvarinnar er: 

  • Virðing

- því hver og einn er einstakur og þekkir sjálfan sig best!

  • Samvinna

- því hver og einn nær betri árangri með samvinnu!

  • Lífsgæði

- því hver og einn á að hafa tækifæri til að njóta sín og taka þátt!

Gildi Reykjadals eru gleði, árangur, ævintýri. 

 

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati