Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

VILT ÞÚ STYRKJA FÉLAGIÐ?

Allt uppbyggingarstarf Styrktarfélagsins hefur byggst á gjöfum og áheitum einstaklinga og fyrirtækja auk tekna af símahappdrætti, minningarkortum, Kærleikskúlunni og nú síðast Jólasveinunum. Sú mikla velvild sem félaginu hefur verið sýnd i gegnum tíðina hefur því skipt gríðarlegu máli og gert því kleift að skapa þá umgjörð sem það starfar við í dag.

Þeim sem áhuga hafa á að styrkja starfsemi félagsins með fjárframlögum er bent á eftirfarandi reikning:

Upplýsingar til útfyllingar gíróseðils eða innlagnarseðils:

Banki     Hb    Reikn.nr.    Kennitala
0526      04    250210      630269-0249

Einnig er styrktaraðilum að sjálfsögðu velkomið að hafa samband við skrifstofu félagsins í síma 535 0900, opið er alla virka daga frá kl. 08:00 - 16:00.

Símahappdrætti SLF er eitt af stærstu og elstu lausasöluhappdrættum landsins. Dregið er í happdrættinu einu sinni á ári, á aðfangadag jóla. Síðustu ár hafa bifreiðar frá Toyota verið í vinning, yfir 15 stk. í hvert sinn!  

Minningarkort frá félaginu eru send samdægurs. Senda kort.

Kærleikskúlan kemur út í desember ár hvert og er þá seld í 15 daga.

Jólaóróarnir eru túlkun fremstu hönnuða og rithöfunda landsins á íslensku jólasveinunum. Óróarnir eru líkt og Kærleikskúlan seldir 15 daga í desember ár hvert.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati