Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Grýla
|
Grýla í túlkun Katrínar Ólínu Pétursdóttur og Hallgríms Helgasonar er jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2008. Katrín fæst við stálið en Hallgrímur við orðin. Grýla er ein þekktasta þjóðsagnapersóna okkar Íslendinga. Hún er móðir jólasveinanna og sinnir því vandasama hlutverki að ala þá ólátabelgina upp. Grýla á sinn stað í hugum okkar flestra, en gráglettnar frásagnirnar vekja gjarnan minningar úr barnæsku. Kvæðið Grýla eftir Hallgrím Helgason HÖFUNDAR Katrín Ólína Pétursdóttir er fædd á Akureyri árið 1967. Hún útskrifaðist sem vöruhönnuður frá Ecole du Design Industrielle, E.S.D.I í París árið 1995. Síðan hefur hún starfað fyrir marga kunna hönnuði, má þar nefna Philippe Starck og Ross Lovegrove. Katrín er ein af okkar fremstu hönnuðum. Hún starfar á alþjóðlegum vettvangi á sviðum vöruhönnunar, myndlistar, tísku, textíls og innanhúsarkitektúrs, og hefur vakið athygli fyrir einstakt myndmál og persónulegan stíl. Verk hennar hafa meðal annars verið framleidd af fyrirtækjum á borð við Rosenthal, Fornarina, Mandarina Duck, Nokia, Dupont Corian® og 100% Design Tokyo. Einnig hafa verk eftir hana verið sýnd í Þjóðarlistasafninu í Osló auk þess að hafa prýtt forsíður þekktra fagtímarita eins og Frame, Azure, IW, Print Magazine og Iceland Review. Katrín hlaut aðalverðlaun FÍT (Félags íslenskra teiknara) árið 2008. Hallgrímur Helgason er fæddur í Reykjavík árið 1959. Hann nam við Myndlista- og handíðaskólann veturinn 1979-1980 og Listaakademíuna í München 1981-1982. Hallgrímur er alkunnur rithöfundur og myndlistarmaður en samhliða því hefur hann fengist við þýðingar, skopteikningar og greinaskrif. Hann hefur haldið yfir 20 einkasýningar á verkum sínum á Íslandi og erlendis auk þess sem verk hans hafa verið sýnd á yfir 30 samsýningum erlendis. Enn fremur hafa bækur Hallgríms verið þýddar á annan tug tungumála, verið kvikmyndaðar og settar upp á sviði í formi leiksýninga. Hallgrímur hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2002 fyrir bók sína Höfundur Íslands og var aftur tilnefndur til verðlaunanna árið 2005 fyrir skáldsöguna Rokland. Jafnframt var hann tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir 101 Reykjavík og Rokland. Hallgrímur hefur að auki hlotið fjölda annarra verðlauna og viðurkenninga.
|
|
Leit













