Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Hurðaskellir

Hurðaskellir er jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2007. Það eru hönnuðurinn Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og rithöfundurinn Andri Snær Magnason sem leggja Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra lið með túlkun sinni á Hurðaskelli. Hún yrkir í stálið og hann kvæðið. Hurðaskellir kemur venjulega til byggða 18. desember, hann er þekktur fyrir að ganga nokkuð harkalega um hús og skella hurðum eins og nafn hans gefur til kynna.

Kvæðið Hurðaskellir eftir Andra Snæ Magnason


HÖFUNDAR

 


Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir

Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir hönnuður hefur haldið sýningar víða um heim á undanförnum árum og hafa verk hennar vakið verðskuldaða athygli. Fjallað hefur verið um þau í helstu tímaritum og bókum um hönnun og listir, meðal annars var hún tilnefnd ein af tíu helstu vonarstjörnum hönnunar í tímaritinu Art Review í árslok 2005. Guðrún Lilja var tilnefnd til menningarverðlauna DV árið 2006 og hlaut Sjónlistarverðlaunin í hönnun sama ár fyrir húsgögn í línunum Inner Beauty og FLAT pack antiques.


Andri Snær Magnason

Andri Snær Magnason er margverðlaunaður rithöfundur. Verk hans hafa verið gefin út eða sýnd í 18 löndum, auk þess sem þau hafa hlotið margvíslegar innlendar og alþjóðlegar viðurkenningar. Sagan af bláa hnettinum hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999, Vestnorrænu barnabókaverðlaunin 2002 og Janusz Korkzak heiðursverðlaunin í Póllandi árið 2000. Skáldsaga hans LoveStar var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna, hlaut menningarverðlaun DV í bókmenntum og var valin skáldsaga ársins af íslenskum bóksölum. Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð hlaut Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana í flokki hand- og fræðibóka árið 2006 og Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár. Andri Snær hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin árið 2002.

 

HurðaskellirAuglýsing


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati