Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Andri Snær Magnason
Andri Snær Magnason er margverðlaunaður
rithöfundur. Verk hans hafa verið gefin út eða sýnd í
18 löndum, auk þess sem þau hafa hlotið
margvíslegar innlendar og alþjóðlegar
viðurkenningar. Sagan af bláa hnettinum hlaut
Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1999,
Vestnorrænu barnabókaverðlaunin 2002 og Janusz
Korkzak heiðursverðlaunin í Póllandi árið 2000.
Skáldsaga hans LoveStar var tilnefnd til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna, hlaut menningarverðlaun
DV í bókmenntum og var valin skáldsaga ársins af
íslenskum bóksölum. Sjálfshjálparbók handa
hræddri þjóð hlaut Bókmenntaverðlaun starfsfólks
bókaverslana í flokki hand- og fræðibóka árið 2006
og Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár. Andri
Snær hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin árið 2002.
Sjá nánar heimasíðu Andra Snæs http://www.simnet.is/andri/islenska/um-andra.php
Leit












