Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Jólakötturinn
Jólakötturinn í túlkun Snæfríðar Þorsteins, Hildigunnar Gunnarsdóttur og Þórarins Eldjárn er jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2010. Snæfríð og Hildigunnur fást við stálið en Þórarinn við orðin.

JÓLAKÖTTURINN
Jólakötturinn er kominn
á kreik.
Nú eru jól að nálgast,
nú á hann leik.
Hann skýtur upp stórri kryppu og klærnar brýnir
kötturinn sá.
Þegar jólin færast nær hann nærsýnn rýnir
og nefið rekur á kaf í íbúaskrá
og leitar að fórnarlömbum
með lúsakömbum,
að fólki því
sem fær ekki fötin ný
að fara í.
Enda er hann illa liðinn líka,
hjá landsins dætrum og sonum.
Þeir sem engum nýjum flíkum flíka
fá það hlutskipti að lenda í honum.
En hann er ekki allur
illur, köttur téður.
Nei, hann er ekki allur,
ekki allur þar sem hann er séður.
Fyrir því má færa rök
að hann sé almennt hafður
heldur betur fyrir rangri sök:
Hann vinnur á kvöldin við að flokka föt,
flikka upp á þau og stoppa í göt
og kemur þeim í notkun á ný
út um borg og bý.
Hann á
skrá
yfir þá
sem föt þurfa að fá.
Hann þekkir best
hvar þörfin er mest.
Þórarinn Eldjárn
HÖFUNDAR
Snæfríð & Hildigunnur:
Hildigunnur Gunnarsdóttir (f.1957) og Snæfríð Þorsteins (f.1968) hafa rekið saman vinnustofu frá árinu 2000. Hildigunnur útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan frá Hogeschool voor de Kunsten í Arnheim í Hollandi árið 1990. Snæfríð útskrifaðist frá École Supérieur de Design Industriel í París árið 1994.
Viðfangsefni þeirra eru fjölbreytileg, allt frá hönnun bóka, nytjahluta, smáhluta, merkja og ímynda til hönnunar sýninga, dreifingar upplýsinga og miðlunar þekkingar.
Snæfríð og Hildigunnur hafa tekið þátt í ýmsum sýningum hérlendis og erlendis og hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk og gripi.
Meðal stærri verðlauna má nefna silfurverðlaun í samkeppni Art Directors club of Europe (2009) og alþjóðlegu gullverðlaunin THE CUP AWARD (2009) fyrir hönnun bókarinnar Flora Islandica.
Þórarinn Eldjárn
Þórarinn Eldjárn er fæddur 22. ágúst 1949. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík og nam síðan bókmenntir og heimspeki við Háskólann í Lundi í Svíþjóð þaðan sem hann lauk fil. kand. prófi vorið 1975.
Þórarinn er eitt ástsælasta skáld okkar Íslendinga. Þekktastur er hann fyrir glímu sína við hið hefðbundna ljóðform en einnig það hvernig hann hefur unnið úr íslenskum menningararfi með ísmeygilegri gamansemi sinni sem tíðum reynist egghvöss þegar betur er að gáð. Þórarinn er gríðarlega fjölhæfur og hefur sent frá sér verk í flestum greinum bókmennta: ljóðabækur í hefðbundnu formi og frjálsu, smásögur, skáldsögur, leikrit og barnaljóð, auk þess sem hann hefur verið afkastamikill þýðandi og höfundur söngtexta.
Þórarinn hefur hlotið fjölda viðurkenninga og verðlauna. Sem dæmi má nefna Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar, Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar, Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur og tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og evrópsku Aristeion-verðlaunanna. Þá var hann Borgarlistamaður Reykjavíkur 2008.

Fréttir og viðburðir
Leit












