Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

KERTASNÍKIR

 

Kertasníkir er jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2006. Hann er fyrsti óróinn í óróarseríu þar sem fara saman íslenskur menningararfur, hönnun og ritsnilld ásamt mikilsverðu málefni.

Næstu jól er von á bræðrum Kertasníkis. Þeir munu birtast einn af öðrum í túlkun fremstu rithöfunda og hönnuða landsins.

Sjón og Sigga Heimis yrkja hér um Kertasníki, hún yrkir í stálið og hann kvæði.

Með túlkun sinni leggja þau Styrktarfélaginu mikilvægt lið. Þau hafa með framlagi sínu sýnt mikinn áhuga á aukinni velferð fatlaðra barna og ungmenna.

Tilgangurinn
Tilgangurinn með gerð og sölu Kertasníkis er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna. Rennur allur ágóði af sölu sveinsins til Æfingastöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra sem fagnaði 50 ára afmæli árið sem Kertasníkir, fyrsti órói seríunnar kom út. 

Íslensku jólasveinarnir
Íslensku jólasveinarnir eru dýrmætur hluti af okkar menningararfi. Þessir ástsælu bræður eru eftirtektarverðir í útliti og háttum og setja mikinn svip á aðventuna og jólahaldið.

Kertasníkir kemur til byggða á aðfangadag jóla, síðastur þrettán jólasveina. Hann er afar hrifinn af kertum – ekki er það þó birtan og ylurinn af þeim sem heilla hann – heldur bragðið! 

Lesa kvæðið ,,Kertasníkir snýr aftur"

HÖFUNDAR

Sigga Heimis (Sigríður Heimisdóttir)
Sigga Heimis (1970) er búsett í Svíþjóð þar sem hún rekur hönnunarfyrirtækið dottirson ásamt því að starfa sem einn aðalhönnuður IKEA. Sigga nam hönnun í Mílano og hafa verk hennar vakið verðskuldaða athygli. Hún hefur, auk þess að kenna hönnun og halda fyrirlestra, unnið að verkefnum í samstarfi við og fyrir helstu hönnunarskóla heims.


Sjón (Sigurjón B. Sigurðsson)
Sjón (1962) hóf rithöfundarferil sinn ungur og kom fyrsta ljóðabók hans, Sýnir, út árið 1978. Síðan hefur hann sent frá sér fjölda ljóðabóka, sex skáldsögur, skrifað leikrit og gefið út efni fyrir börn. Sjón hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. hefur hann verið tilnefndur til Óskarsverðlauna og hlotið Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.

Oslóartréð skreytt Kertasníki!

Á Alþjóðadegi fatlaðra þann 3. desember 2006 var brotið blað í yfir 50 ára sögu Oslóartrésins. Tendrað var á trénu fagurskreyttu Kertasníki - mun það vera í fyrsta sinn sem tréð var skreytt öðru en einungis ljósum. Sjón frumflutti kvæði sitt ,,Kertasníkir snýr aftur" við mikinn fögnuð viðstaddra.

     

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kertasníkir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati