Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Sigga Heimis

 

Sigga Heimis (Sigríður Heimisdóttir) fæddist í Reykjavík 21. febrúar 1970. Sigga er búsett í Svíþjóð og starfar þar sem einn aðalhönnuður Ikea, auk þess sem hún rekur hönnunarfyrirtækið dottirson ásamt eiginmanni sínum David Sandahl. Hún lauk prófi í iðnhönnun árið 1994 frá Istituto Europeo di Design í Mílano og meistaraprófi í hönnun árið 2000 frá Domus Academy í sömu borg. Sigga stofnaði hönnunarfyrirtækið H&H árið 1994 og rak það í nokkur ár. Hún hefur kennt hönnun, haldið fyrirlestra víða um heim og unnið að verkefnum í samstarfi við og fyrir helstu hönnunarskóla heims, m.a. Parsons í New York og Royal College of Art í London. Sigga hefur hlotið Compasso D’Oro verðlaunin, auk þess sem verk hennar hafa birst í Alþjóðlegu hönnunar árbókinni og verið sýnd víðsvegar um heim.

 

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati