Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Sjón

Sjón (Sigurjón B. Sigurðsson) fæddist í Reykjavík 27. ágúst 1962. Hann hóf rithöfundarferil sinn ungur og kom fyrsta ljóðabók hans, Sýnir, út 1978. Síðan hefur hann sent frá sér fjölda ljóðabóka, sex skáldsögur, hefur skrifað leikrit og gefið út efni fyrir börn. Samhliða rithöfundarferlinum hefur Sjón tekið þátt í myndlistasýningum og tónlistarviðburðum. Árið 2001 var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir söngtexta í kvikmyndinni Dancer in the Dark og 2004 samdi hann textann við lagið Oceania sem Björk flutti við opnun Ólympíuleikanna í Aþenu. Fyrir skáldsögur sínar, Augu þín sáu mig og Með titrandi tár, hlaut hann menningarverðlaun DV. Skáldsagan Argóarflísin fékk Bóksalaverðlaunin sem besta skáldsaga ársins 2005. Sama ár hlaut Sjón Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir bók sína Skugga-Baldur. Verk hans hafa verið þýdd á annan tug tungumála.

 


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati