Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Ketkrókur
|
Ketkrókur í túlkun Gerðar Kristnýjar og Hrafnkels Birgissonar er jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2009. Hrafnkell fæst við stálið en Gerður við orðin. Ketkrókur kemur til byggða á Þorláksmessu, næstsíðastur bræðranna þrettán. Hann er þekktur fyrir að nota krókinn sinn til að krækja sér í hangilæri og gæða sér á. Markmið með gerð og sölu Ketkróks er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna. Allur ágóði rennur til brýnna verkefna á vegum Æfingastöðvar Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.
HÖFUNDAR Hrafnkell Birgisson Hrafnkell Birgisson er fæddur í Reykjavík árið 1969. Hann útskrifaðist sem vöruhönnuður frá Listaháskólanum í Saarbrucken í Þýskalandi. Hrafnkell starfar við vöru-, innanhúss- og sýningarhönnun en vinnur aðallega að sjálfsprottnum nýsköpunarverkefnum með öðrum hönnuðum og framleiðendum. Sem dæmi má nefna Tools You Bake bökunarformin sem og Vík Prjónsdóttir. Ein þekktasta hönnun Hrafnkels er Hábollinn sem finna má í söfnum og hönnunarbúðum víðs vegar um heiminn. Hrafnkell hefur þróað og kennt námskeið innan Listaháskóla Íslands, má þar nefna verkefnið De-Ikea sem hann stýrði einnig við Bauhaus University í Weimar og Californian College of the Arts í San Francisco. Verk Hrafnkels hafa prýtt bækur á borð við the International Design Yearbook 2007 og Furnish frá Gestalten Verlag. Auk þess tók hann þátt í farandsýningunni Shaping the New Century - European Design since 1985 sem opnuð var í Indianapolis Museum of the Arts árið 2009.
Gerður Kristný Gerður Kristný er fædd í Reykjavík árið 1970. Hún lauk BA-prófi í frönsku með almenna bókmenntafræði sem aukafag frá Háskóla Íslands árið 1992. Hún hefur skrifað á annan tug bóka fyrir börn og fullorðna. Ljóð og smásögur Gerðar hafa birst í kennslubókum fyrir grunn- og framhaldsskóla, auk þess sem ljóð hennar og smásögur eru í ýmsum safnritum, íslenskum sem erlendum. Gerður hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar, meðal annars Bókaverðlaun barnanna fyrir Mörtu smörtu og Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir Bátur með segli og allt. Fyrir bók sína Myndin af pabba - Saga Thelmu hlaut Gerður Blaðamannaverðlaun Íslands árið 2005. Síðasta ljóðabók hennar, Höggstaður, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2007 og ári síðar fékk skáldsaga hennar, Garðurinn, Bóksalaverðlaunin sem besta barnasagan. Lesa kvæði Gerðar Kristnýjar "Ketkrókur kemst í feitt".
Ketkrókur er seldur dagana 5. - 19. desember. Allur ágóði sölunnar rennur óskiptur til brýnna verkefna í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Verslanirnar taka enga söluþóknun og leggja því málefninu mikilvægt lið.
|
|
Fréttir og viðburðir
6.9.2010
Útitónleikar í Reykjadal
Leit










