Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Ketkrókur kemst í feitt

 

Norðanbálið hamast

svo hvorki heyrist

spunahljóð né spjall.

 

Húsbændur loka að sér

í rekkjunni.

Engin leið að vita

hvort það er ástin eða óveðrið

sem lætur allt leika á skjálfi.

 

Heimasætan grúfir sig

yfir askinn,

slafrar í sig lambi

og laumast til að góna á

nýfermdan niðursetninginn.

Það sem menn stælast

af dúntekju og dagróðrum!

 

Svo er bitinn búinn

en meira bíður

inni í eldhúsi.

 

Göngin fyllast af

forvitnum draugum

(aðallega fyrri ábúendur

og stöku útburður).

 

Stúlkan olnbogar sig

að hlóðunum

og lyftir upp lokinu.

 

Þá berst brölt af sperru,

spyrnt er í háfinn.

Krókur sígur

niður úr kófinu,

glampandi öngull

í myrkurhyl.

Sterklegar greipar

ljúkast um færið.

 

Stúlkan bregst skjótt við,

handtökin snör eftir

spuna og gegningar.

Hún grípur krókinn

og festir við klukku og kot.

 

,,Hirtu ekki um kjötið!

Steldu mér!

Ég er steini léttari!"

                              

                   Gerður Kristný


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati