Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Leppalúði
Leppalúði er jólaórói Styktarfélags lamaðra og fatlaðra 2011. Í óróunum fara saman íslenskur menningararfur, hönnun og ritsnilld ásamt mikilsverðu málefni. Hér er kominn sjötti óróinn í seríuna en það eru þær Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir, hönnuður og Ingibjörg Haraldsdóttir, ljóðskáld sem leggja félaginu lið í ár með túlkun sinni á Leppalúða.
Tilgangurinn með gerð og sölu Kertasníkis er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna.

| LEPPALÚÐI | |
|
Hann Leppalúði þótti nokkuð baldinn.
|
Þá bar svo við eitt kvöldið Hann hafði fyrir langalöngu Ingibjörg Haraldsdóttir |
HÖFUNDAR
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir
Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík árið 1976. Hún lauk BA-prófi í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2001. Ingibjörg rekur hönnunarfyrirtækið IHANNA HOME sem hannar og framleiðir fylgihluti fyrir heimilið. Meðal þekktra verka hennar er herðatréð Krummi sem finna má í söfnum og hönnunarverslunum víðs vegar um heiminn.
Ingibjörg Hanna hefur tekið þátt í fjölmörgum hönnunarsýningum hér heima og erlendis, má þar nefna 100% Design í London haustið 2008 en í kjölfar þeirrar sýningar var fjallað um verk hennar í blöðum á borð við Elle Decoration, Dwell og Sunday Times. Meðal verðlauna og viðurkenninga sem Ingibjörg Hanna hefur hlotið eru fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni Listasafns Reykjavíkur, Kraums og Hönnunarmiðstöðvar árið 2009.
Ingibjörg Haraldsdóttir
Ingibjörg Haraldsdóttir fæddist í Reykjavík 21. október 1942. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík hélt hún til náms í kvikmyndastjórn við Kvikmyndaskóla ríkisins í Moskvu og lauk þaðan Mag.Art. prófi árið 1969. Frá Moskvu fluttist hún til Kúbu þar sem hún starfaði sem aðstoðarleikstjóri en kom heim alkomin árið 1975.
Ingibjörg er meðal fremstu ljóðskálda okkar Íslendinga og er jafnframt þekkt fyrir að vera afburðagóður þýðandi. Ljóð Ingibjargar hafa verið þýdd á erlenda tungu, m.a. ensku, rússnesku og þýsku, en hún hefur verið eftirsóttur þátttakandi á bókmennta- og ljóðahátíðum hér heima og erlendis. Ingibjörg hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar og verðlaun. Má þar nefna Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar, Íslensku bókmenntaverðlaunin, Menningarverðlaun DV fyrir þýðingu sína á Fávitanum eftir Dostojevskí og Íslensku þýðingarverðlaunin 2004 fyrir Fjárhættuspilarann eftir sama höfund. Þá hefur hún tvisvar verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, 1993 og 2004.
LEPPALÚÐI FÆST Í VERSLUNUM DAGANA 5.- 19. DESEMBER
Leit










