Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
KÆRLEIKSKÚLAN

|
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur staðið að útgáfu Kærleikskúlunnar frá árinu 2003 og eru kúlurnar því orðnar níu talsins. Frá upphafi hafa kúlurnar fengið frábærar viðtökur landsmanna enda um að ræða einstakt safn listaverka eftir marga þekktustu listamenn okkar Íslendinga. Listamenn Kærleikskúlunnar hafa allir gefið vinnu sína og þannig stutt dyggilega við starf í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
|
||
|
TILGANGUR BLESSUN |
||
|
ÚTLIT Ár hvert fær Kærleikskúlan nýtt útlit - og er verkið í höndum fremstu listamanna þjóðarinnar. Í grunninn er Kærleikskúlan tær eins og kærleikurinn - |
||
|
KÆRLEIKSKÚLAN VEITT VERÐUGUM FYRIRMYNDUM Fyrir hver jól er haldin athöfn í Listasafni Reykjavíkur þar sem kúla ársins er frumsýnd. Biskup Íslands hefur blessað hverja kúlu auk þess að fyrsta kúla hvers árs er veitt verðugri fyrirmynd eða fyrirmyndum úr hópi fatlaðra.
SAMSTARFSAÐILAR Starfsfólk Áss vinnustofu sem rekin er af Styrktarfélaginu Ási, hefur séð um að setja saman kassana undir kúlurnar, klippa borðana og pakka svo öllu saman. Um margra vikna vinnu er að ræða sem unnin er af einstakri gleði og áhuga. Hvíta húsið, Icelandair Cargo, Pósturinn og Listasafn Reykjavíkur hafa styrkt verkefnið og þannig sýnt áhuga sinn á aukinni velferð fatlaðra barna og ungmenna. Listasafn Reykjavíkur og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar hafa aðstoðað við val á listamönnum. Skjal ehf. hefur gefið alla vinnu við þýðingar texta yfir í enska tungu. Aðrir helstir eru Tónstofa Valgerðar og Þórdís Guðjónsdóttir prófarkalesari.
SÖLUAÐILAR Allir þeir söluaðilar sem selja Kærleikskúluna gera það án þóknunar og leggja því málefninu mikilvægt lið. Söluaðilar Kærleikskúlunnar eru: Casa, Epal, Hafnarborg, Kokka, Kraum, Listasafn Reykjavíkur, Líf oglist, Módern, Blóma- og gjafabúðin, Póley, Norska Húsið, Valrós og Pósturinn. Styrktarfélagið þakkar ofantöldum aðilum ómetanlegan stuðning.
|
||
|
|
||
|
|
Leit












