Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Handhafar Kærleikskúlunnar
|
Kærleikskúla hvers árs er afhent verðugri fyrirmynd eða fyrirmyndum. HANDHAFAR KÆRLEIKSKÚLUNNAR:
2010 Valgerður Jónsdóttir og Bjöllukórinn Bjöllukórinn og Valgerður Jónsdóttir stjórnandi hans hlutu Kærleikskúluna 2010 en Halldór Gunnar Pálsson kór- og hljómsveitarstjóri Fjallabræðra og meðlimir úr Fjallabræðrum afhentu Valgerði og Bjöllukórnum kúluna. Þeir félagar hafa verið miklir vinir Reykjadals og spiluðu til að mynda tvisvar í Reykjadal sl. sumar. Valgerður hefur með óeigingjörnu starfi sínu gefið fjöldanum öllum af nemendum með sérþarfir kost á að njóta tónlistarnáms og þannig endurspeglað nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðra í samfélaginu. Bjöllukórinn hefur þau tólf ár sem hann hefur verið starfandi gefið þeim sem í honum eru mikla gleði og ekki síður þeim sem hafa notið þeirrar gæfu að hlýða á hann. Valgerður Jónsdóttir tónlistarkennari og músíkþerapisti hefur starfað við tónlistarkennslu fyrir nemendur með sérþarfir frá árinu 1987 en það ár stofnaði hún Tónstofuna. Nemandi í Tónstofunni getur lagt stund á hefðbundið tónlistarnám en getur einnig notið fjölþættrar tónlistarkennslu og þjálfunar sem beinist að því að efla tónnæmi hans og tónlistarfærni, bæta líðan hans og veita sköpunarþörfinni útrás. Í Bjöllukórnum eru 13 hljóðfæraleikarar. Á þeim árum sem kórinn hefur starfað hefur hann víða komið fram. Hann hefur leikið víða en meðlimir Sigur Rósar hafa til að mynda notið aðstoðar kórsins. Svokallaðar Suzuki handbjöllur eru notaðar í kórnum. Hver bjalla er einn tónn og hver nemandi leikur á einn eða tvo tóna í einu. Stjórnandinn leikur svo á bjöllukórsmeðlimi eins og tóna í tónstiga. Allir meðlimir kórsins gegna þýðingarmiklu hlutverki þar eð sálmurinn eða dægurlagið sem verið er að flytja hljómar ekki rétt nema allir séu mættir og haldi vöku sinni. 2009 Embla Ágústsdóttir Embla Ágústsdóttir hlaut Kærleikskúluna 2009 en hún tók við henni úr hendi Maríu Ellingssen leikkonu. María er móðir barns sem nýtt hefur dvölina í Reykjadal og var gaman að heyra hversu jákvæða reynslu þær mæðgur höfðu af dvölinni. Embla er sannarlega verðug fyrirmynd en hún hefur á engan hátt látið hreyfihömlun sína hindra sig í að lifa lífinu til fulls og ná háleitum markmiðum sínum í námi og starfi. Með því að miðla af reynslu sinni og lífssýn hefur hún unnið að því að breyta viðhorfum til fatlaðra og fengið fólk til að skilja að þó að hreyfihömlun sé sannarlega áskorun þá sé hún ekki endilega hindrun eða afsökun. Embla hélt áhrifamikla ræðu við þetta tækifæri þar sem fram kom að þær hindranir sem fatlaðir mæta orsakist ekki síst af takmörkuðum skilningi og skorti á trú á hæfni fólks með fötlun. Hér má sjá ræðu Emblu í heild sinni
2008 Halaleikhópurinn Halaleikhópurinn hlaut Kærleikskúluna árið 2008 og tók Guðný Alda Einarsdóttir við kúlunni fyrir hönd hópsins. Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóri Borgarleikhúsins afhendi kúluna. Halaleikhópurinn fæst við leiklist á forsendum hvers og eins og hefur þannig á vissan hátt opnað nýja vídd í starfi leikhópa hér á landi. Leikhópurinn er skipaður fötluðum sem ófötluðum leikurum og hefur það að markmiði að iðka leiklist fyrir alla. Leikhópurinn hlaut á árinu þá eftirsóttu viðurkenningu "Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2007-2008 að mati Þjóðleikhússins" og var sýningin í kjölfarið sett upp á svið leikhússins. Með þessu sönnuðu þau sem að Halaleikhópnum standa enn frekar að fötlun er á engan hátt hindrun þegar kemur að listsköpun.
Frá vinstri: Ása Hildur Guðjónsdóttir formaður Halaleikhópsins, Guðný Alda Einarsdóttir og
|
|
2007 Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
|
|
2006 Ný-ung NÝ - UNG hópurinn hlaut Kærleikskúluna 2006 og var það Jóhanna Þórkatla Eiríksdóttir, sunddrottning og systurdóttir Gabríelu, sem afhenti kúluna að þessu sinni. Unga fólkið í NÝ-UNG er öðrum verðug fyrirmynd, en það hefur af mikilli hugkvæmni, jákvæðni og krafti unnið að því að breyta viðhorfum fólks. Það berst fyrir betra lífi, auknum möguleikum og réttindum fyrir fólk með fötlun. Hópurinn hefur farið óhefðbundnar leiðir í baráttu sinni, haft húmorinn að vopni og m.a. staðið fyrir meðmælagöngum, sérmerkt bílastæði fyrir ófatlaða, veitt hressingarverðlaunum ... í þeim tilgangi að vekja fólk til umhugsunar - meðvitundar um að samfélagið er allra. Sjá nánar um NÝ-UNG og oryrki.net
|
|
2005 Bjarki Birgisson, Tómas Birgir Magnússon
Listasafn Reykjavíkur var klætt í hátíðarbúning þann 1. desember 2005, en þá afhenti frú Dorrit Moussaieff þar fyrstu Kærleikskúluna 2005, þeim Bjarka Birgissyni, Tómasi Birgi Magnússyni og Guðbrandi Einarssyni. Þeir þremenningarnir sem gengu hringinn í kringum landið undir kjörorðinu ,,Haltur leiðir blindan". Á sinni erfiðu ferð vildu þeir létta byrðar annarra með því að vekja athygli á lífi og aðstæðum barna með sérþarfir í þeirri von að það yrði lóð á vogarskálarnar í baráttunni fyrir betra lífi, auknum möguleikum og réttindum fyrir börnin og fjölskyldur þeirra.
|
|
2004 Freyja Haraldsdóttir
Sjá nánar um Freyju og verkefnið ,,Það eru forréttindi að lifa með fötlun".
|
|
2003 Forseti Íslands
|
Leit


Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfsbjargar, og höfundur gjörningsins Tökum höndum saman hlaut Kærleikskúluna 2007. Kolbrún Dögg tók við kúlunni úr hend Frú Vigdísar Finnbogadóttur, en hún afhenti kúluna með þeim orðum að Kolbrún Dögg berðist af jákvæðni og kjarki fyrir breyttum viðhorfum og fyrir samfélagi sem einkenndist af umburðarlyndi, virðingu og réttlæti þar sem allir gætu tekið þátt og notið sín á eigin forsendum. Við athöfnina söng Kolbrún Dögg eigð ljóð, Streymi, við lag eftir eiginmann sinn Ragnar Gunnar Þórhallsson.
Freyja Haraldsdóttir veitti fyrstu Kærleikskúlunni 2004 viðtöku úr hendi hera Karls Sigurbjörnssonar biskups yfir Íslandi. Þegar ákveða átti hverjum skyldi færð fyrsta Kærleikskúla ársins 2004 var nafn Freyju Haraldsdóttur nefnt hvað eftir annað vegna þess hvern mann hún hefur að geyma og þess sem hún hefur gefið öðrum. Því hún hefur með viðhorfum sínum til lífsins, viðmóti og persónutöfrum haft mikil áhrif á alla þá sem tækifæri hafa fengið til að kynnast henni. Hún er afrekskona í mörgum skilningi, hún hefur með einstöku hugarfari og hjálp sinnar góðu fjölskyldu tekist á við mikla erfiðleika með sigri andans.











