Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Kærleikskúlan 2003 - Erró

Kærleikskúlan kom út í fyrsta sinn árið 2003 og var það Erró sem lagði félaginu lið með verki sínu, 2 málarar

2 MÁLARAR

Verkið heitir ,,2 málarar" og er úr röð verka sem Erró gerði árið 1984. Það er eins og flest verka hans byggð á tilvísunum í myndir annarra, að þessu sinni eru það verk meistaranna Picasso og Léger. Orðin þrjú "PAIX - LIBERTÉ - SOLIDARITÉ" eru boðskapur myndarinnar.

ERRÓ

Erró (Guðmundur Guðmundsson) fæddist í Ólafsvík árið 1932, en ólst upp að Kirkjubæjarklaustri. Erró, sem er án efa þekktasti samtímalistamaður Íslendinga, stundaði listnám hér heima og síðar m.a. í Noregi og á Ítalíu. Hann hefur verið virkur þátttakandi í listalífi Parísarborgar frá árinu 1958, bæði innan súrrealistahreyfingarinnar og sem einn af forvígismönnum popplistarinnar. Hann hefur haldið fjölda sýninga víða um heim, bæði einn og í samstarfi við aðra. Erró hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum, m.a. verið sæmdur Fálkaorðunni og frönsku heiðursnafnbótinni Officier de l'Ordre et des Lettres. Í gegnum tíðina hafa megin viðfangsefni Errós verið saga listarinnar, erótík, pólitík, ævisögur, skáldsagnapersónur, teiknimyndahetjur og vísindaskáldskapur.

Nánar um Erró

    

Kærleikskúlan 2003

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kærleikskúlan í kassanum

AFHENDING

Herra Ólafur Ragnar Grímsson tók við fyrstu Kærleikskúlunni úr hendi Steinunnar Ásu Þorvaldsdóttur við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur. Þar blessaði herra Karl Sigurbjörnsson biskup yfir Íslandi Kærleikskúluna. Eiríkur Þorláksson fjallaði um Erró og list hans og Eva Þengilsdóttir sagði frá Kærleikskúlunni og þakkaði samstarfsaðilum. Bjöllukórinn undir stjórn Valgerðar Jónsdóttur heillaði viðstadda með fögrum tónum.

           

 

Hr. Ólafur Ragnar og Steinunn

     

 



                                 

    .

 

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati