Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Kærleikskúlan 2004 - Ólafur Elíasson

Augað eftir Ólaf Elíasson er Kærleikskúla ársins 2004.

AUGAÐ

Uppspretta verksins er augað. Augun eru stórkostlegt verkfæri, þau eru farvegur fyrir samskipti, þau hafa áhrif á skilning okkar og skoðanir á okkur sjálfum, öðrum, umhverfinu –  heiminum!

“Ég hef mikla ánægju af því að leika mér með eitthvað sem mér þykir fallegt. Fegurð er varasamt orð vegna þess að það er búið að staðla það og gera að einhverri klisju. Því ættum við kannski að tala um fagurfræði frekar en fegurð. Oft getur eitthvað sem er mjög ljótt við ákveðnar aðstæður orðið ótrúlega fallegt við aðrar. Svo fegurð er ekki einangrað fyrirbæri, hún er frekar spurning um eitthvað sem er einhvers virði og virði má alltaf semja um.”

Ólafur Elíasson

ÓLAFUR ELÍASSON

Ólafur Elíasson er fæddur árið 1967 í Kaupmannahöfn og stundaði listnám þar við Konunglega listaháskólann á árunum 1989 til 1995. Ólafur sem er heimsþekktur listamaður hefur haldið fjölmargar sýningar víða um heim, bæði einn og í samstarfi við aðra. Einkasýningar hans hafa vakið gríðarlega athygli og er þar skemmst að minnast sýninga hans í Tate Modern og Listasafni Reykjavíkur. Verk Ólafs er að finna bæði í almennings- og einkasöfnum hér heima og erlendis þar á meðal í Solomon R. Guggenheim-safninu í New York, Nýlistasafninu í Los Angeles, Deste-stofnuninni í Aþenu, Tate Modern í London og Listasafni Reykjavíkur. Hann býr og starfar í Berlín.

Sjá nánar um Ólaf Elíasson

 

AFHENDING

Freyja Haraldsdóttir veitti fyrstu Kærleikskúlunni 2004 viðtöku úr hendi herra Karls Sigurbjörnssonar biskups yfir Íslandi.

Þegar ákveða átti hverjum skyldi færð fyrsta Kærleikskúla ársins 2004 var nafn Freyju Haraldsdóttur nefnt hvað eftir annað vegna þess hvern mann hún hefur að geyma og þess sem hún hefur gefið öðrum. Því hún hefur með viðhorfum sínum til lífsins, viðmóti og persónutöfrum haft mikil áhrif á alla þá sem tækifæri hafa fengið til að kynnast henni. Hún er afrekskona í mörgum skilningi, hún hefur með einstöku hugarfari og hjálp sinnar góðu fjölskyldu tekist á við mikla erfiðleika með sigri andans.

 

  Augað

 

 

 

 

 

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati
Þorbjörn Helgason