Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

KÆRLEIKSKÚLAN 2006 - GABRÍELA

Árið 2006 lagði Gabríela Friðriksdóttir Styrktarfélaginu lið með verki sínu Salt jarðar.

SALT JARÐAR

„Óteljandi agnir mynda landslag sem breiðir úr sér og þekur jörðina
Þar vaxa áferðarmiklir og kynlegir kvistir
Landslag sem mótar og nærir hin margvíslegu lífsform og andann sem innan og utan þess býr
Það er lífsvilji sálarinnar og vonin sem mynda samfélög heimsins

Að viðurkenna, varðveita og virða hið skapandi afl margbreytileikans er krydd lífsins -
SALT JARÐAR

Gabríela

 

Gabríela Friðriksdóttir

Gabríela Friðriksdóttir er fædd árið 1971 í Reykjavík, stundaði listarnám þar og síðar í Tékklandi. Innsetningar Gabríelu einkennast af frumleika og dirfsku og notar hún ólíkt efnisval og miðla til tjáningar; málverk, skúlptúra, teikningar, tónlist og myndbandsverk. Gabríela gerir verk á jaðri hins hlutbundna og óhlutbundna og hins mannlega og dýrslega. Hún leitar svara í því sem gerist á mörkum dags og drauma, á milli hins rökvísa og röklausa og í spennunni milli hugar- og efnisheims. Gabríela hefur unnið og haldið sýningar víða um heim bæði ein og í samstarfi við aðra. Árið 2005 var hún fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum þar sem innsetning hennar Versations Tetralogia vakti mikla athygli. Gabríela hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar fyrir listsköpun sína og hefur skapað sér sess sem einn frumlegasti og áhugaverðasti listamaður sinnar kynslóðar.
(Sjá nánar á http://www.gabriela.is/ )

Sjá auglýsingu

Frumsýning í Berlín

Að þessu sinni fór frumsýning Kærleikskúlunnar fram í Berlín og verður kúlan seld þar fyrir jólin. Er það í fyrsta sinn sem Kærleikskúlan er tekin til sölu utan landssteinanna. Kærleikskúlan er einmitt blásin í Lauscha í Þýskalandi þar sem byggt er á 400 ára gamalli hefð í glerblæstri. Þar hafa þeir tekist á við framsæknar hugmyndir íslensku listamannanna af miklum áhuga.

AFHENDING

NÝ - UNG hópurinn hlaut Kærleikskúluna 2006 og var það Jóhanna Þórkatla Eiríksdóttir, sunddrottning og systurdóttir Gabríelu, sem afhenti kúluna að þessu sinni.

Þórkatla og Eva

Unga fólkið í NÝ-UNG er öðrum verðug fyrirmynd, en það hefur af mikilli hugkvæmni, jákvæðni og krafti unnið að því að breyta viðhorfum fólks. Það berst fyrir betra lífi, auknum möguleikum og réttindum fyrir fólk með fötlun. Hópurinn hefur farið óhefðbundnar leiðir í baráttu sinni, haft húmorinn að vopni og m.a. staðið fyrir meðmælagöngum, sérmerkt bílastæði fyrir ófatlaða, veitt hressingarverðlaunum í þeim tilgangi að vekja fólk til umhugsunar - meðvitundar um að samfélagið er allra.

Sjá nánar um NÝ-UNG og oryrki.net

     

AuglýsingSaltið

 

 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati
Þorbjörn Helgason