Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

KÆRLEIKSKÚLAN 2007 - EGGERT PÉTURSSON

 

Eggert Pétursson lagði Styrktarfélaginu lið árið 2007 með verki sínu Hring.

HRINGUR

"Eftir vetur kemur vor, síðan sumar, haust og aftur vetur. Af gróðrinum lesum við framrás tímans. Sortulyngið ber blóm að vori. Blómið verður að beri sem þroskast yfir sumartímann og um haustið er berið orðið skærrautt. Lyngið dvelur undir snjónum og birtist aftur vorgrænt og blómgast á ný. Fræin skjóta rótum.

Lífskeðjan er óslitinn hringur."

Eggert Pétursson

 

EGGERT PÉTURSSON

Eggert Pétursson fæddist í Reykjavík 1956. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðar í Jan van Eyck Academie í Maastricht, Hollandi. Eggert hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir sérstæð málverk sín af íslenskri flóru, en hún vakti snemma áhuga hans. Málverk Eggerts virðast oft einlit eða abstrakt í fjarlægð en þegar nær er komið opnast undraheimur flórunnar. Hvert laufblað og hvert krónublað er málað af einstakri natni. Þekking Eggerts á viðfangsefninu kemur glöggt fram í myndskreytingum hans í Íslenskri flóru Ágústs H. Bjarnasonar sem kom út árið 1983. Eggert, sem er í fremstu röð íslenskra listmálara, hlaut önnur verðlaun Carnegie Art Award 2006.

Sjá nánar verk Eggerts.

 

 

HANDHAFI KÆRLEIKSKÚLUNNAR 2007

 

Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfsbjargar, og höfundur gjörningsins Tökum höndum saman hlaut Kærleikskúluna 2007. Kolbrún Dögg tók við kúlunni úr hend Frú Vigdísar Finnbogadóttur, en hún afhenti kúluna með þeim orðum að Kolbrún Dögg berðist af jákvæðni og kjarki fyrir breyttum viðhorfum og fyrir samfélagi sem einkenndist af umburðarlyndi, virðingu og réttlæti þar sem allir gætu tekið þátt og notið sín á eigin forsendum. Við athöfnina söng Kolbrún Dögg eigð ljóð, Streymi, við lag eftir eiginmann sinn Ragnar Gunnar Þórhallsson.

 

 

KærleikskúlanEggert


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati