Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Kærleikskúlan 2008 - GJÖRNINGAKLÚBBURINN
|
Gjörningaklúbburinn lagði Styrktarfélaginu lið árið 2008 með verki sínu Allt sem andann dregur.
ALLT SEM ANDANN DREGUR Kærleikskúlan er blásin upp af því dýrmætasta sem hverri lifandi manneskju er gefið, andardrætti. Andinn í kúlunni er táknrænn fyrir hið ósnertanlega og andlega, langanir og þrár. Kúlan er kysst þremur kossum sem fela í sér tjáningu ástar, vináttu og þakklætis. Kyssum hvert annað. Gjörningaklúbburinn Eirún, Jóní og Sigrún
GJÖRNINGAKLÚBBURINN Gjörningaklúbburinn er skipaður listakonunum Eirúnu Sigurðardóttur, Jóní Jónsdóttur og Sigrúnu Hrólfsdóttur. Samstarf þeirra hófst í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, þaðan sem þær útskrifuðust árið 1996. Gjörningaklúbburinn á að baki mikinn fjölda sýninga og hefur hlotið verðskuldaða athygli og viðurkenningar fyrir framsækin og margræð verk sín. Hugmyndir listakvennanna tengjast gjarnan samskiptum kynja, manna og náttúru og þykja verkin hafa yfir sér glaðværð og glæsileika sem ofinn er saman við þyngri undirtón. Þeim er engin tækni eða aðferð óviðkomandi þegar þær vinna að því að koma hugmyndum sínum í viðeigandi form hvort sem um er að ræða Móður jörð, listaverk í landslaginu við Vatnsfellsvirkjun, eða heklaða búninga fyrir Voltu, plötu Bjarkar Guðmundsdóttur. Verk Gjörningaklúbbsins má finna í helstu listasöfnum á Íslandi og víða erlendis.
HANDHAFI KÆRLEIKSKÚLUNNAR 2008 Halaleikhópurinn hlaut Kærleikskúluna árið 2008 og tók Guðný Alda Einarsdóttir við kúlunni fyrir hönd hópsins. Magnús Geir Þórðarson leikhússtjóra Borgarleikhúsins afhendi kúluna. Halaleikhópurinn fæst við leiklist á forsendum hvers og eins og hefur þannig á vissan hátt opnað nýja vídd í starfi leikhópa hér á landi. Leikhópurinn er skipaður fötluðum sem ófötluðum leikurum og hefur það að markmiði að iðka leiklist fyrir alla. Leikhópurinn hlaut á árinu þá eftirsóttu viðurkenningu "Athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2007-2008 að mati Þjóðleikhússins" og var sýningin í kjölfarið sett upp á svið leikhússins. Með þessu sönnuðu þau sem að Halaleikhópnum standa enn frekar að fötlun er á engan hátt hindrun þegar kemur að listsköpun.
|
![]() |
Leit













