Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
Kærleikskúlan 2011
SKAPAÐU ÞINN HEIM eftir Yoko Ono er Kærleikskúla ársins 2011.
SKAPAÐU ÞINN HEIM
fyrir Ísland með ástarkveðju
yoko ono 2011
Teiknaðu ímyndað kort á svarthvítan hnött.
Kastaðu pílu á handahófskenndan stað á hnettinum.
Litaðu svæðið þar sem pílan lendir með lit að eigin vali.
Kastaðu pílunni aftur og sjáðu hvar hún lendir.
Litaðu svæðið þar sem hún lenti með lit að eigin ósk.
Haltu áfram að lita svæðin þar sem pílan lendir.
Haltu áfram að lita þar til heimurinn allur er í lit.
Sumar, 2011
|
Yoko Ono YOKO ONO er fjölhæfur listamaður sem ögrar stöðugt hinum hefðbundnu mörkum listarinnar. Hún er þekkt fyrir byltingarkennda hugmyndalist og gjörninga, tilraunamyndir og tónlist. Árið 2007 afhjúpaði hún Friðarsúluna í Viðey og berst enn ötullega fyrir friði, meðal annars með friðarherferð sinni, „IMAGINE PEACE“. |
|
Sölutímabil: 12. - 26. október og 5. - 19. desember
Leit












