Reykjavíkurmaraþonið

Hlauptu til góðs! SKRÁ MIG Í HLAUP 

Hlaupurum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka gefst kostur á að hlaupa til styrktar Reykjadals, Æfingastöðvarinnar eða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Áheitasöfnunin fer fram á hlaupastyrkur.is.

Hér má heita á hlaupara fyrir REYKJADAL ÆFINGASTÖÐINA STYRKTARFÉLAGA LAMAÐRA OG FATLAÐRA

 

Hlaupum saman 

Að vera hluti af hlaupahóp er frábær leið til að safna áheitum sem ein heild. Hópurinn velur sér eitt málefni sem fær öll áheit sem berast beint á hópinn. Einstaklingarnir í hópnum geta síðan valið hvort þeir hlaupi persónulega fyrir þetta sama góðgerðarfélag eða eitthvað annað.

Til þess að stofna hlaupahópinn þarf einn úr hópnum að skrá sig inná mínar síður Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Þar má búa til hóp og bjóða öðrum í hann. Hlaupari sem vill tilheyra hópnum og hefur verið bætt við af hópstjóra þarf svo að fara inn á mínar síður til að samþykkja skráninguna. Hópmeðlimir geta síðan bætt við öllum sínum miðum/skráningum í hópinn. Til að hópurinn birtist hér á vefnum þarf sá sem stofnaði hópinn að setja inn mynd af hópnum eða lógó og stuttan texta um hópinn. Sjá nánar um hlaupahópa hér. 

 

Takk fyrir stuðninginn!