- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Andrea Rói er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði með kynjafræði sem aukagrein frá Háskóla Íslands. Andrea Rói hefur setið mörg námskeið tengd inngildingu og samtvinnun mismunabreyta bæði hérlendis og erlendis.
Andrea Rói hefur starfað í Reykjadal frá 2014 og tók við sem forstöðumaður sumarið 2022. Andrea Rói brennur fyrir réttindamálum og hagsmunum jaðarsetts fólks. Andrea Rói vinnur einnig fyrir umboðsmann barna sem sérfræðingur í þátttöku barna og í ungmennahúsi Samtakanna '78.
Áslaug útskrifaðist með BSc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1982 og lauk námi í Þjónustustjórnun frá Endurmenntun HÍ 2008.
Fyrstu árin starfaði hún á Landspítalanum en 1986 var hún ráðin til Æfingastöðvarinnar þar sem hún hefur starfað síðan að undanskildum tveimur árum sem hún vann hjá Sjálfsbjörgu á Akureyri.
Frá 1991 hefur hún eingöngu unnið með börn og unglinga.
Áslaug var yfirsjúkraþjálfari á Æfingastöðinni 1.maí 2005 - 31.desember 2019 en er nú sjúkraþjálfari á yngra teymi og sinnir aðallega þjálfun barna á aldrinum 0-6ára.
Björk útskrifaðist með BSc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands vorið 2008 og MSc. í heilbrigðisvísindum frá Háskóla Íslands haustið 2015.
Björk er með sérfræðiviðurkenningu í barnasjúkraþjálfun og hefur starfað á Æfingastöðinni frá 2008.
Guðbjörg eða Gugga eins og hún er oftast kölluð, útskrifaðist með BSc í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1982. Hún lauk tveggja ára mastersnámi í heilbrigðisvísindum (cand.san.) við Háskólann í Osló 1998. Árin 2008-2011 stundaði hún nám við Námsbraut í Lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands og lauk þaðan mastersprófi (MPh) í maí 2011. Guðbjörg er með sérfræðiviðurkenningu í barnasjúkraþjálfun.
Guðbjörg hefur víðtæka reynslu af sjúkraþjálfun barna. Hún vann fyrstu árin á Landakoti og Barnaspítala Hringsins en fluttist síðan til Noregs þar sem hún starfaði m.a. stofnun fyrir einstaklinga með þroskaskerðingu, í skóla fyrir einstaklinga með heyrnaskerðingu, á barnadeild Ríkisspítalans og í heilsugæslunni þar sem hún vann með börnum inni á leikskólum, skólum og í heimahúsum. Síðustu fimm árin fyrir heimkomuna starfaði Guðbjörg á Hæfingar- og greiningarstöð ríkisins í Noregi. Hún hefur starfað á Æfingastöð SLF frá ársbyrjun 2001.
Hreyfihömlun barna hefur verið aðaláhugasvið Guðbjargar, m.a. börn með CP (heilalömun) og MMC (hrygg- og mænurauf) og hún hefur umsjón með þverfaglegum móttökum með bæklunarskurðlækni á vegum Æfingastöðvarinnar. Undanfarin ár hefur hún ásamt fleirum boðið hreyfihömluðum börnum upp á sjúkraþjálfun á hestbaki á vegum ÆSLF og lauk réttindanámi í Svíþjóð þar að lútandi sumarið 2007. Guðbjörg þýddi sænska CPUP (CP Uppföljning) eftirfylgnikerfið og hefur leitt innleiðingu þess á Æfingastöðinni.
Guðlaug lauk BS. prófi í iðjuþjálfun frá heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri árið 2020. Guðlaug hóf störf hjá Æfingastöðinni haustið 2020.
Guðrún Ágústa lauk námi í sjúkraþjálfun frá HÍ árið 1996 og framhaldsnámi í sjúkraþjálfun barna frá Høgskolen í Osló árið 2006.
Guðrún Ágústa hóf störf á Æfingastöðinni haustið 2007.
Frá 1996 - 1999 og 2001 - 2002 starfaði Guðrún Ágústa á Endurhæfingardeild Landspítalans í Kópavogi þar sem vinna með fjölfatlaða var stærstur hluti starfsins. Árið 1999 starfaði hún hjá Sjúkraþjálfun Styrk og árið 2000 hjá Sjúkraþjálfun Íslands. Frá 2004 - 2007 vann Guðrún á barna - og kvennadeild Akershus Háskólasjúkrahúss í Noregi þar sem hún sinnti bæði börnum á spítalanum og göngudeildarþjónustu fyrir börn.
Gunnhildur lauk Bs. prófi í iðjuþjálfunarfræðum frá heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri árið 2011 og meistaraprófi í heilbrigðisvísindum frá sama skóla 2015.
Gunnhildur hóf störf hjá Æfingastöðinni árið 2017 og var ráðin í stöðu yfiriðjuþjálfa í byrjun árs 2022. Áður starfaði hún sem iðjuþjálfi á barna og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) og sem aðstoðarmaður rannsókna við félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands.
Gunnhildur er menntuð í notkun dýra við íhlutun en hún lauk námi um notkun hunda við meðferðir frá Landbúnaðarháskólanum í Noregi. Hún tekur á móti börnum og ungmennum í iðjuþjálfun ásamt tíkinni Skottu sem er fyrsti vottaði þjónustuhundur á Íslandi.
Helga lauk prófi í iðjuþjálfun frá Skolen for ergo- og fysioterapeuter í Álaborg í Danmörku í desember 1987. Hún lauk sérskipulögðu námi til B.Sc prófs í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri árið 2005.
Helga hóf störf á Æfingastöðinni í maí 1988. Hún starfaði á Borgarspítalanum í byrjun árs 1988.
Hildur útskrifaðist með BSc. gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands árið 1987 og hefur starfað síðan á Æfingastöðinni. Hún sinnir nær eingöngu fullorðnum en einnig mikið fötluðum ungmennum. Hildur hefur áhuga á öllu sem hægt er að nýta við meðferð og þjálfun.
Ingibjörg Ásta lauk BSc í sjúkraþjálfunarfræðum frá Læknadeild, Háskóla Íslands 2017. Útskrifaðist með MSc í sjúkraþjálfun frá Læknadeild, Háskóla Íslands 2019 og hefur starfað síðan þá á Æfingastöðinni.
Samhliða starfi sínu á Æfingastöðinni og námi hefur Ingibjörg verið sjúkraþjálfari fyrir ýmis íþróttalið síðan 2017.
Ísak lauk BSc prófi í sjúkraþjálfunarfræðum árið 2021 og útskrifaðist með MS gráðu í sjúkraþjálfun frá Læknadeild Háskóla Íslands 2023. Ísak hóf störf á Æfingastöðinni í ágúst 2023.
Samhliða námi og vinnu hefur Ísak starfað sem sjúkraþjálfari hjá ýmsum íþróttaliðum og hjá yngri landsliðum Íslands í handbolta.
Jóhanna lauk BSc prófi í sjúkraþjálfunarfræðum árið 2019 og MSc prófi í sjúkraþjálfun frá Læknadeild Háskóla Íslands árið 2021.
Jóhanna hefur mikinn áhuga á sjúkraþjálfun á hestbaki og er í námi því tengdu í Landbúnaðarháskólanum í Noregi.
Jóhanna hóf störf á Æfingastöðinni haustið 2021.
Samhliða starfi sínu á Æfingastöðinni vinnur Jóhanna á HL-stöðinni við framhaldsþjálfun hjartasjúklinga og er í fagteymi sjúkraþjálfara hjá KKÍ.
Jóna Guðný útskrifaðist með BSc. í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands vorið 2008 og hóf störf á Æfingastöðinni þá um sumarið. Síðustu tvö sumur fyrir útskrift starfað Jóna Guðný í sumarbúðum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra í Reykjadal.
Samhliða starfi sínu á Æfingastöðinni kennir Jóna Guðný bakleikfimi hjá Breiðu bökunum og hefur gert síðastliðin ár.
Jónína lauk B.Sc. prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2001. Hún hóf störf á Æfingastöðinni vorið 2001.
Jórunn útskrifaðist frá HÍ með BSc gráðu í sjúkraþjálfun 1987. Hún hóf störf á Æfingastöðinni árið 2000.
Kolbrún lauk B.Sc prófi í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands vorið 2006 og meistaraprófi frá Háskólanum í Lillehammer 2016.
Hún starfaði á Æfingastöðinni frá 2006 og þar til hún flutti til Noregs haustið 2007. Í Noregi starfaði Kolbrún meðal annars sem sjúkraþjálfari barna og unglinga í Osló og Lillehammer. Einnig starfaði hún sem sjúkraþjálfari í ungbarnaeftirliti heilsugæslunnar og í þverfaglegu teymi á taugadeild barna við Ullevaal sjúkrahúsið í Osló.
Kolbrún hóf aftur störf á Æfingastöðinni í ársbyrjun 2017 og tók við starfi yfirsjúkraþjálfara 1.janúar 2020.
Pétur útskrifaðist með B.Sc. gráðu frá H.Í. árið 1988. Hann hóf þegar störf hjá Æfingastöðinni og starfaði þar óslitið fram til 1999. Starfaði hann hjá Sjúkraþjálfun Afl í eitt ár en byrjaði aftur hjá Æfingastöðinni haustið 2000.
Pétur sinnir þjálfun eldri barna/unglinga auk fullorðinna.
Rósa útskrifaðist með B.Sc. gráðu í sjúkraþjálfun frá HÍ árið 1981. Hún starfaði fyrstu tæpu tvö árin á Æfingastöðinni og kynntist þar sjúkraþjálfun barna. Hún vann síðan á Barnadeild Landspítalans í 10 ár við þjálfun og eftirlit ungra barna. Eftir það hefur hún starfað á Æfingastöðinni eða frá 1995 með börnum og unglingum. Rósa vinnur einnig á Lyngási sem Styrktarfélag Ás rekur og sinnir þar þjálfun ungra barna með fjölfötlun.
Hafdís útskrifaðist frá HÍ með B.Sc. gráðu í sjúkraþjálfun árið 1983. Hún hefur starfað á Æfingastöðinni síðan 1997 en vann áður á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað í tíu ár. Hafdís hefur síðustu ár eingöngu sinnt sjúkraþjálfun barna og unglinga. Hún hefur starfað í Öskjuhlíðaskóla frá hausti 2001 og er einn af stjórnendum hópþjálfunar barna hér á Æfingastöðinni.
Sandra Lynch lauk prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri vorið árið 2023 og hóf störf á Æfingastöðinni haustið 2023.
Sandra lauk námi við samtökin Romanas pilates vorið 2022 og kennir við Eldrún pilates studio. Einnig er hún umsjónaraðili og leiðbeinandi á reiðnámskeiðum fyrir hestamannafélaga Háfeta.
Sigríður Arna lauk prófi í iðjuþjálfun frá Háskólanum á Akureyri árið 2021 og hóf störf á Æfingastöðinni haustið 2021.
Áður starfaði hún m.a. í sumarbúðum Reykjadals 2021. Frá ársbyrjun 2022 hefur hún verið aðstoðarkennari við iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri og situr í fræðslunefnd Iðjuþjálfafélagsins.
Sigrún hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2007. Hún er viðurkenndur bókari að mennt.
Sigrún útskrifaðist frá Læknadeild HÍ með BSc gráðu í sjúkraþjálfun árið 2016.
Hún hóf störf hjá Æfingastöðinni árið 2020.
Einnig starfar hún við einstaklingsþjálfun og hópsjúkraþjálfun hjá Stíganda sjúkraþjálfun - í Heilsuklasanum og hefur starfað þar síðan 2020.
Frá árunum 2017-2020 starfaði hún sem sjúkraþjálfari hjá Heilsuborg.
Sylvía Dögg lauk BS. prófi í iðjuþjálfun frá heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri árið 2020. Sylvía hóf störf hjá Æfingastöðinni haustið 2021.
Tania útskrifaðist í janúar 2021 með alþjóðleg réttindi sem einkaþjálfari frá Intensive PT. Hún er einnig menntuð sem leikskólaliði og starfaði um árabil á leikskóla áður en hún gekk til liðs við Æfingastöðina. Þar starfaði hún meðal annars sem stuðningur/þjálfi fyrir barn með sérþarfir, bæði í leikskóla og grunnskóla.
Valrós lauk prófi í iðjuþjálfun frá Skolen for ergo- og fysioterapeuter í Óðinsvéum í Danmörku árið 1982. Hún lauk sérskipulögðu námi til B.Sc prófs í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri 2005.
Valrós hóf störf á Æfingastöðinni árið 1989. Hún hefur frá árinu 2001 starfað sem staðgengill yfiriðjuþjálfa.
Valrós starfaði árin 1982-1987 á Endurhæfingadeild Borgarspítalans
Styrktarfélag lamaðara og fatlaðra
Reykjadalur
Æfingastöðin