Beint á leiðarkerfi vefsins

Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra

Algengar spurningar

 

HVAR ER FÉLAGIÐ TIL HÚSA?
Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík.
Sími: 535 0900. Strætisvagnaleið 3.

HVER ER FRAMKVÆMDASTJÓRI OG HVAR NÆ ÉG Í HANN?
Framkvæmdastjóri er Vilmundur Gíslason, unnt er að ná í hann á skrifstofutíma í síma 535 0900.

HVERJIR GETA LEITAÐ TIL ÆFINGASTÖÐVAR SLF?         
Fólk með frávik af ýmsum toga allt frá vægum einkennum til fjölfötlunar getur leitað til okkar. Til að unnt sé að hefja þjálfun hjá Æfingastöð SLF þarf beiðni frá lækni.   Ef þörf er á framhaldsmeðferð er fólk vinsamlega beðið um að hafa samband við þjálfara.

HVERJIR GETA KOMIÐ OG DVALIÐ Í REYKJADAL?
Reykjadalur er opinn öllum þeim sem ekki geta notið þess að sækja aðrar sumarbúðir vegna fötlunar sinnar.
Í Reykjadal koma börn og ungmenni alls staðar að af landinu. Flest eru á aldrinum 6 ára til tvítugs. Einnig koma nokkrir á aldrinum 20 - 25 ára.

HVERT ER NETFANG SLF?

Netfangið er slf@slf.is. Netföng starfsfólks er að finna undir Um Styrktarfélagið, Starfsfólk.

HVENÆR ER OPIÐ?

Skrifstofa félagsins er opin alla virka daga frá kl. 08:00 - 16:00

Sundlaugin er opin alla virka daga nema fimmtudaga fyrir þá sem ekki nýta sér almenningssundlaugar, 
frá kl. 8:00 – 9:30 og kl. 12:30 – 15:00.
Gjald er kr. 100.-

Æfingasalurinn er opinn alla virka daga
 frá kl. 8:00 – 16:00
Gjald er kr. 200.-

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda síðu Prenta þessa síðu Veftré English information Hamur fyrir sjónskerta Hvati