Staða aðstoðarmanns þjálfara laus til umsóknar

Æfingastöðin auglýsir stöðu aðstoðar í sjúkra- og iðjuþjálfun lausa til umsóknar. Leitað er eftir öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á fjölbreyttu starfi með fólki. Æfingastöðin er fjölskylduvænn vinnustaður og er vinnuvika starfsfólks í fullri vinnu 36 klst. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þátttaka í fjölbreyttu hópastarfi.
  • Þátttaka í meðferð undir handleiðslu þjálfara.
  • Tölvuvinna (excel, word, outlook).
  • Umsjón með gögnum og rýmum.
  • Tiltekt, frágangur og þrif í þjálfunarrýmum (undanskildum gólfum).

 

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf.
  • Reynsla af starfi með börnum kostur.
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Tölvukunnátta.
  • Sveigjanleiki í starfi.
  • Íslenskukunnátta áskilin.

 

Gott ef viðkomandi gæti hafið störf 16. ágúst. Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí 2023 og berist til yfirþjálfara Æfingastöðvarinnar:

Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi: gunnhildur@slf.is

Kolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari: kolla@slf.is