ÍFR býður börnum með hreyfihömlun í íþróttaskóla

Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík býður 4 til 10 ára börnum með hreyfihömlun að taka þátt í íþróttaskóla. Ekkert gjald er tekið fyrir þátttöku í skólanum sem hefst laugardaginn 11. febrúar. 

Áhugasömum er bent á að skrá sig með því að senda tölvupóst á ifr@ifr.is 

Við skráningu þarf  nafn barnsins að koma fram, aldur, fötlun og nafn foreldra. Sjá nánar á vefsíðu Íþróttafélagsins en auglýsingu félagsins má einnig sjá hér fyrir neðan.

Kennt verður á laugardögum frá kl.11.00 til 11.50 í íþróttahúsi ÍFR, Hátúni 14.

Auglýsing frá ÍFR