Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstarf í Reykjadal

 Við erum að leita að ung og ábyrgu fólki sem vill starfa í skemmtilegu umhverfi í sumarbúðum fatlaðra barna og ungmenna í Reykjadal.

Starfsemin hefst í lok maí og lýkur um miðjan ágúst. Einnig stendur til boða að taka helgarvaktir yfir vetrartímann. Starfsmenn eru um 50 talsins og vinna á tvískiptum vöktum. Við leitum að starfsfólki á dagvaktir, á næturvaktir og í eldhús.

Ekki er gerð krafa um menntun en áhugi er auðvitað skilyrði. 
Vinna í Reykjadal er tilvalin vinna í sumarfríi frá skóla.

Umsóknarfrestur er til 15. febrúar

Þú getur sótt um með því að smella hér.

Allar nánari upplýsingar veitir Margréta Vala  Marteinsdóttir forstöðumaður Reykjadals í síma 535-0907 eða með tölvupósti á reykjadalur@slf.is