Finnbogi Pétursson opnar sýningu í Neskirkju

Finnbogi með Kærleikskúlu ársins
Finnbogi með Kærleikskúlu ársins

Finnbogi Pétursson listamaður Kærleikskúlunnar í ár opnar á morgun sýningu í Neskirkju.

Finnbogi hefur lengi verið í fremstu röð íslenskra listamanna og er brautryðjandi á sínu sviði myndlistarinnar. Hann hefur haldið tugi sýninga um allan heim og var fulltrúi Íslands í Feneyjatvíæringnum árið 2001. Hljóð hefur verið meginefniviðurinn í myndlistinni frá upphafi. Skynjunin er Finnboga hugleikin, hann leikur sér með mörk sjónar og heyrnar og gjarnan svo að hið ósýnilega verður sýnilegt. Í innsetningum hans, oft alltumlykjandi, verða nærstaddir að þátttakendum sem hafa áhrif á verkið á sama tíma og þeir upplifa ljós- og hljóðbylgjur á nýjan hátt.

Hann sýnir nokkur verk í Neskirkju næstu vikurnar og opnar sú sýning á morgun kl. 11.

 

Neskirkja, sunnudaginn 29. nóv. opnun 11:00 - 13:00

Posted by Finnbogi Petursson on Föstudagur, 27. nóvember 2020


Kærleikskúlan ÞÖGN inniheldur hljóðupptöku á segulbandi sem Finnbogi tók upp á Arnarstapa árið 1986 milli kl. 3 og 4 að nóttu.
„Þarna hitti ég stundina þegar allt þagnar; fuglarnir, sjórinn, vindurinn, rollurnar – flugurnar. Stundina þegar náttúran endurstillir sig, verður hljóð og nýr dagur rennur upp,“ segir Finnbogi um upptökuna. Hér sýnir hann skopunarferli Kærleikskúlunnar. Hver kúla inniheldur 1 metra af segulbandi, sem jafngildir 1 sekúndu af þögn.

4.370 metrar af Íslenskri þögn....

Posted by Finnbogi Petursson on Föstudagur, 27. nóvember 2020