"Með tímanum myndar Skotta tengsl við börnin sem er fallegt að verða vitni að"

Skotta
Skotta

Flatta tíkin Skotta er nýjasti meðlimur Æfingastöðvarteymisins. Hún aðstoðar Gunnhildi Jakobsdóttur iðjuþjálfa við meðferðir og hefur samstarfið gengið vonum framar.

„Með tímanum myndar Skotta tengsl við börnin sem er fallegt að verða vitni að. Auk þess að geta gert verkefni tímans meira áhugaverðar þá má einnig sjá jákvæð áhrif á sjálfstraust barna þegar þeim tekst að fá stóran svartan hund til að gera hinar ýmsu þrautir og trix að þeirra beiðni. Þá hafa þau haft það verkefni að skipulagt þrautabraut sem þau stjórna henni í gegnum,“ þetta er brot úr lýsingu Gunnhildar á viku í lífi þjónustuhunds sem var birt í Hundalífspóstinum í gær.

Gunnhildur hefur lokið námi um notkun hunda við meðferðir frá Landbúnaðarháskólanum í Noregi. Gunnhildur og Skotta hafa síðan í desember tekið á móti skjólstæðingum í iðjuþjálfun í aðstöðu Æfingastöðvarinnar í Íþróttahúsinu Strandgötu í Hafnarfirði. Undirbúningurinn hefur verið langur en Skotta þurfti að standast skapgerðarmat og úttekt frá ICofA. Hún er því vottaður þjónustuhundur, sá fyrsti hér á landi eftir því sem við komumst næst.

Það hefur gengið vonum framar að hafa Skottu með í meðferðum að sögn Gunnhildar. Hún hefur náð til barna og ungmenna sem annars var erfitt að ná til. Skotta og Gunnhildur taka á móti skjólstæðingum í Hafnarfirði á þriðjudögum og fimmtudögum.