Terrella eftir Elínu Hansdóttur er Kærleikskúla ársins 2018

Elín Hansdóttir er listamaður Kærleikskúlunnar árið 2018. Kúlan ber heitið Terrella og er allur ágóði af sölu hennar til styrktar sumar - og helgardvalarstaðinn í Reykjadal. 

 

Elín Hansdóttir er fædd árið 1980 en hún lauk BA - prófi frá Listaháskóla Íslands og MA - prófi frá KHB – Weissensee í Berlín. Innsetningar Elínar, sem byggðar eru fyrir tiltekin rými, taka á sig margvíslegar myndir. Verk hennar ögra og hvetja áhorfendur til að upplifa og skynja umhverfi og rými á nýjan hátt, en þau fjalla í grundvallaratriðum um tilvist mannsins og fegurðina í óvissunni. Elín hlaut Íslensku bjartsýnisverðlaunin árið 2017 og Guðmunduverðlaunin seinna sama ár. 

 

Elín lýsir sýn sinni á bak við hönnunina í þessum orðum:



Innan glerhjúpsins er kúla sem dregur að sér efni og skapar heild sem einungis varir eitt andartak. Um leið og utanaðkomandi kraftur hreyfir við henni verður samsetningin á yfirborði hennar önnur. Fegurðin býr í tilviljanakenndri lögun, þeim margbreytileika sem að aðdráttaraflið býður uppá og þeim áhrifum sem við getum haft á umhverfi okkar – því kærleikurinn getur með krafti sínum sameinað og umbreytt því sem kemst í tæri við segulmagn hans.

 

 

Kúlan verður seld í búðum víðsvegar um land og á netverslun Styrktarfélagsins: www.kaerleikskulan.is
Sölutímabilið er frá 5. - 19. desember.