Styrkja Vefverslun
Vefverslun
Karfan er tóm.
Æskuvinir Reykjadals (30 ára+) er klúbbur ætlaður fólki 30 ára og eldri sem dvaldi í Reykjadal sem börn eða unglingar. Markmiðið er að viðhalda tengslum og rækta vináttu með árlegum hittingum og þátttöku í starfi SLF. Þátttökugjald jafngildir árlegu félagsgjaldi SLF eða 3500 kr.
Meðlimir Æskuvina Reykjadals eru jafnframt boðnir velkomnir sem fullgildir félagsmenn SLF – án aukakostnaðar. Félagsfólk gegnir lykilhlutverki í mótun þjónustu SLF – það er rödd þeirra sem þekkja, muna og vilja leggja sitt af mörkum.