Opið fyrir umsóknir fyrir sumarið 2023!
Sumarbúðir Reykjadals í Háholti í Skagafirði eru fyrir börn og unglinga 8-18 ára með ADHD og/eða einhverfu.
Raðað er í hópa eftir aldri og félagslegum tengslum.
Vináttan er mikilvægur þáttur í starfsemi Reykjadals. Við leggjum mikla vinnu í að raða í hópa í von um að gestir okkar geti eignast vini og séu fremstir meðal jafningja.
Í Reykjadal er hugmyndafluginu sleppt lausu og þar er haft að leiðarljósi að ekkert sé ómögulegt. Lögð er áhersla á það að allir sem þangað sækja fái að njóta sín á sínum eigin forsendum og skemmti sér í góðra vina hópi í ævintýrafirðinum, Skagafirði.
Úthlutun mun fara fram fyrir 1.apríl 2023 og kemur í tölvupóst.
Ef eitthvað er óljóst má hafa samband með tölvupósti á reykjadalur@slf.is eða heyra í forstöðumanni, Andreu Róa, í síma 6968321