Fjölskyldufrí Reykjadals 2024

Viljið þið fjölskyldan koma í frí með öðrum fjölskyldum fatlaðra barna? 

- For information in English send an email to reykjadalur@slf.is <3

Með stuðningi frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu endurtökum við leikinn og bjóðum fjölskyldum fatlaðra barna upp á frí og samveru. Mikil ánægja hefur verið meðal þeirra fjölskyldna sem tóku þátt með okkur í Húsavík, Vík í Mýrdal og Stykkishólmi. Draumur SLF er að festa þessa mikilvæga verkefni í sessi fyrir fjölskyldur fatlaðra barna á Íslandi.

Fjölskyldufrí Reykjadals er tilvalið tækifæri fyrir fjölskyldur fatlaðra barna að fara saman í frí, fá stuðning og tengjast fleiri fjölskyldum. Í ár fá fjölskyldur þeirra barna á aldrinum 2 - 12 ára forgang sem hafa ekki komist í sumarbúðirnar Reykjadals vegna aldurs eða stöðu á biðlista. En við hvetjum öll áhugasöm að sækja um. 

Starfsfólk frá Reykjadal verður til staðar að aðstoða með öll þau börn sem taka þátt.

Gert er ráð fyrir að dvölin sé þrjár nætur, fimmtudag til sunnudag. Á hótelinu eru góð fjölskylduherbergi og gott rými. Um 5-6 fjölskyldur koma saman í hvor helgina.

Í ár bjóðum við upp á frí með sumarblæ í Reykholti í Borgarfirði, á frábæru hóteli og stutt er í marga afþreyingu. Fjölbreytt dagskrá við allra hæfi verður í boði, allt frá heitum laugum yfir í ævintýrlega útiveru. Reykjadals-stemningin mun ráða ríkjum og auðvitið verður boðið upp á kvöldvökur.

Kostnaður:  kr. 30.000 fyrir fullorðna, kr. 15.000 fyrir 6-17 ára og frítt fyrir 0-5 ára. Innifalið í verði er gisting, afþreying og allur matur.

Staðsetning:

Fosshótel Reykholt - stutt í alla þjónustu og um 30 mínútu keyrsla frá Borgarnesi.

Tímasetningar í boði:
16.maí - 19.maí 2024

30.maí - 2.júní

Takmarkaður fjöldi plássa er í boði og best að sækja um sem fyrst.

Verkefnið er fjármagnað af félags og vinnumarkaðsneytinu með það markmið að tengja saman fjölskyldur fatlaðra barna. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra ber ábyrgð á verkefninu.

*Umsóknarfrestur er 25. apríl og úthlutað verður strax 26.apríl.

Allar nánari upplýsingar veita Andrea Rói og Hildur forstöðufólk Reykjadals í gegn um símann 5666234 eða reykjadalur@slf.is

nóg að skrifa eitt foreldri hér

Má velja fleiri en eina :)
Við hringjum í allar fjölskyldur til að fá info um ofnæmi/aðgengisþarfir/stuðningsþarfir og þess háttar