Karfan þín

Karfan er tóm.

Reykjadalsvinir: Umsókn um dvöl í sumarfrí 2025

Vinahópar Reykjadals: Fullorðinsfrí með Reykjadal 2025

Sjötta árið í röð stendur fullorðnu fötluðu fólki til boða að koma í sumarfrí að hætti Reykjadals. Verkefnið er styrkt af félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu líkt og fyrri ár. Þetta árið bjóðum við ungu fólki á aldrinum 20 ára til 30 ára að taka þátt í verkefninu (árgangar 1995 til og með 2004).

Að þessu sinni verður fyrirkomulagið þannig að vinahópurinn hittist í byrjun sumars og skipuleggur sjálfur komandi frí, hvert vinahópurinn á að fara, hvaða dagskrá verður og gerir matseðil.

- 1 skipulagsfundur í mars-apríl
- Dvölin sjálf í 4 nætur í júlí/ágúst/september 2025.

Reykjadalsstemningin verður ríkjandi, óvissuferðir, kvöldvökur og fleira skemmtilegt með hópi af fólki sem þú tengir við.

Markmiðið er að efla öll í hópnum að taka þátt í skipulaginu og sjá afreksturinn með vinahópnum síðar um sumarið. 

Umsóknarfrestur er 28. feb 2025 og úthlutun mun fara fram stuttu seinna.

Verð í fríið er 65.000kr með öllu inniföldu. Takmörkuð pláss eru í boði.

Við horfum til vináttu þegar við röðum í hópana og gerum okkar besta að svara óskum ykkar.

Það má heyra í forstöðufólki í síma: 5666234 eða í gegn um reykjadalur@slf.is

Þvílíkt sem við erum spennt að hitta Reykjadalskempurnar okkar <3

Vinsamlegast fyllið umsóknarformið samviskusamlega út.

 

Persónuupplýsingar
þess sem kemur til dvalar

íbúðarkjarni, barnaheimili eða sambærilegt (á ekki við um skammtímavistun)
Upplýsingar varðandi fötlun


Heilsufar


Fylgja neyðarlyf?
T.d. augn- eða eyrnabólgur, ofnæmi, þvagsýkingu eða annað? (Meðhöndlun)
Félagsleg atriði

hvað finnst honum/henni gaman að gera?

Svefnvenjur
Annað
T.d eitthvað varðandi hegðun.
Vinir sem vilja vera saman.