Umsókn um dvöl í Ævintýrabúðum Reykjadals í Skagafirði sumarið 2024

Við hrópuðum milljón sinnum húrra þegar við fegnum að vita um miðjan janúar að mennta- og barnamálaráðuneytið ákvað að styrkja Ævintýrabúðir Reykjadals næstu tvö ár, 2024 og 2025 <3 Lengi lifi Reykjadalur í ævintýrafirðinum Skagafirði!

Opið fyrir umsóknir fyrir sumarið 2024!

Sumarbúðir Reykjadals í Háholti í Skagafirði eru fyrir börn og unglinga 8-18 ára með ADHD og/eða einhverfu. 

Raðað er í hópa eftir aldri og félagslegum tengslum.

Vináttan er mikilvægur þáttur í starfsemi Reykjadals. Við leggjum mikla vinnu í að raða í hópa í von um að gestir okkar geti eignast vini og séu fremstir meðal jafningja.

Í Reykjadal er hugmyndafluginu sleppt lausu og þar er haft að leiðarljósi að ekkert sé ómögulegt. Lögð er áhersla á það að allir sem þangað sækja fái að njóta sín á sínum eigin forsendum og skemmti sér í góðra vina hópi í ævintýrafirðinum, Skagafirði.

Úthlutun mun fara fram í mars 2023 og kemur í tölvupósti. 

Ef eitthvað er óljóst má hafa samband með tölvupósti á reykjadalur@slf.is eða heyra í forstöðumanni, Andreu Róa, í síma 6968321

 

 

Persónuupplýsingar
þess sem kemur til dvalar

Upplýsingar um forsjáraðila:

kennitala á greiðsluseðil
Ef ekki næst í foreldra/forsjáraðila
Upplýsingar varðandi fötlun
Einungis það sem skiptir máli til að undirbúa starfsfólk og hópinn sjálfann.
t.d, stuðningskó, peltora eða ipad.

Heilsufar


ofnæmi fyrir matartegundum, gróðri, efnum eða lyfjum
og hvernig eru viðbrögðin við ofnæmiskasti?

T.d. augn- eða eyrnabólgur, mígreni, ofnæmi, þvagsýkingu eða annað? (Meðhöndlun)
er eitthvað sem við þurfum að vita?
Félagsleg atriði

Eða er eitthvað sem gera má betur?

Matarvenjur
t.d. óþol, ofnæmi, grænmetisfæði eða skyntruflanir
við getum verslað það inn :)
Svefnvenjur
Annað
t.d. við að klifra, týnast, stinga af o.fl.
t.d. eitthvað sem hann er hræddur við?
það má hringja í forstöðumann til að segja frá öðrum persónulegum upplýsingum sem komu ekki fram hér í umsókninni.

Fer eftir eftirspurn í sumarbúðirnar

Vettvangsferðir og óvissuferðir




Notkun myndefnis

-Svo sem á heimasíðu félagsins www.slf.is þar sem hægt er að finna upplýsingar og fréttir. Myndir úr Reykjadal eru notaðar í kynningarskyni til almennrar fræðslu samfélagsins á starfseminni en oft einnig til að fá styrki og/eða áheit úr fjáröflunum. Myndir geta einnig birst í fjölmiðlum ef að frétt um Reykjadal kemur upp. Það getur verið út af margs kyns ástæðum, þá til dæmis vegna nýs aðbúnaðs, vegna fjáraflanna eða vegna sérstakra heimsókna. Þeir sem samþykkja myndbirtingar samþykkja því að myndir geti verið notaðar í hvers kyns kynningarstarfsemi fyrir Reykjadal og fyrir Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Gætt er þess að myndir sem notaðar eru séu faglega myndaðar og að þær muni ekki skaða neinn.

Facebook síða Reykjadals og SLF eru notaðar til að fræða aðstandendur og aðra um starfsemina. Myndir af gestum sem samþykkja myndbirtingar eru einnig notaðar í auglýsingaskyni, í herferðum fyrir fjáraflanir eins og Kærleikskúluna um jólin, happdrættismiða á sumrin og í söfnun annarra styrkja sem eru ætlaðir til uppbyggingar, til að bæta starfsemina og aðbúnað. Gætt er þess að valdnar séu myndir sem eru faglega unnar og sem munu ekki valda einstaklingum ama. Mikilvægt er að benda á að einstaklingar geta óskað þess að myndum af þeim verði eytt ef það á við og mun félagið verða við þeirri ósk undantekningarlaust. Vert skal að árétta að í skilmálum Facebook, sem notendur miðilsins samþykkja, kemur fram að Facebook safnar þeim upplýsingum sem miðlað er þar innan.
Mynd af umsækjanda
Gott ef umsækjandi er að koma í fyrsta sinn
t.d. upplýsingar, leiðbeiningar