Langar þig til að skapa ævintýri í sumar? – Skemmtilegastu sumarminningarnar gerast í Reykjadal!
Við leitum að ábyrgðarfullu og drífandi fólki til að starfa í sumarbúðum Reykjadals ýmist í Mosfellsdal og Skagafirði.
Þetta er tilvalið tækifæri til að öðlast reynslu og taka þátt í skemmtilegu sumarstarfi. Við leitum að fólki sem hefur áhuga á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Hér er hægt að lesa nánar um starfið
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri og hafa hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er 1.mars en við byrjum að taka í viðtöl 1.febrúar (því betra að sækja um fyrr en seinna).
Öll fá svar um boð í atvinnuviðtal - við erum spennt að heyra frá þér!
Helstu verkefni starfsins:
|
Hæfniskröfur:
|
- Umönnun og aðstoð við gesti sumarbúðanna.
- Skipulag á dagskrá og óvissuferðum.
- Samskipti við foreldra/forsjáraðila.
- Ýmis tilfallandi verkefni og þrif.
|
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Áhugi á að starfa með fólki.
- Gott verkvit og nákvæmni í vinnubrögðum.
- Kunna að hafa gaman og skapa stemningu.
|