Ofurhugar

Námskeið fyrir börn með AHDH og foreldra þeirra sem hafa áhuga á að læra um möguleg áhrif ADHD á daglegt líf og finna leiðir til að auka þátttöku.

Markmið:

  • Efla jákvæð samskipti með þátttöku í hópleikjum
  • Auka einbeitingu og úthald
  • Efla sjálfstraust
  • Kynnast nýjum bjargráðum sem nýtast í daglegu lífi
  • Þekkja inn á eigin tilfinningar
  • Læra inn á eigin styrkleika

Námskeiðslýsing:

Áhersla er lögð á þátttöku og jákvæð samskipti m.a. í gegnum umræður, hópleiki samvinnuverkefni og spil.

Í samvinnu meta barn, foreldrar og iðjuþjálfi hvort námskeiðið henti barninu. Hópurinn samanstendur af 6 börnum í 4.bekk í grunnskóla og tveimur iðjuþjálfum.

Staður:

Æfingastöðin, Háaleitisbraut 13

Tími:

2x í viku, 90 mín í senn í 10 skipti

Námskeið á vor- og haustönn

Umsjón:

Iðjuþjálfar

Ábyrgðarmaður: Sonja Ólafdóttir og Guðlaug Þórlindsdóttir