Skólaskopp

Námskeið fyrir börn á síðasta ári í leikskóla. Markmið þjálfunarinnar er að undirbúa börn fyrir þátttöku í fjölbreyttum athöfnum í skóla.  Í Skólaskoppi eru börn bæði í sjúkra- og iðjuþjálfun. 

Markmið:

  • Efla grip og beitingu með skriffæri og skæri
  • Efla einbeitingu og úthald við skólatengdar athafnir
  • Efla jákvæð samskipti með þátttöku í hópleikjum
  • Biðja um aðstoð
  • Meðtaka fyrirmæli og fara eftir reglum
  • Huga að set- og vinnustöðu
  • Efla sjálfstraust og þor
  • Efla líkamsvitund, fín- og grófhreyfifærni
  • Auka sjálfstæði við að klæðast

Námskeiðslýsing:

Börnin hafa með sér íþróttaföt og klæða sig undir handleiðslu þjálfara. Tímarnir fara fyrst fram í íþróttasal og svo inni í stofu. Hver tími er þematengdur þar sem börnin læra að fylgja reglum sem almennt gilda í skólum.

Áhersla er lögð á að efla þátttöku í gegnum verkefni, spil, leiki. Hámark 8 börn í hverjum hópi.

Staður:

Æfingastöðin, Háaleitisbraut 13

Tími:

2x í viku, 75 mín. í senn, 16 skipti.

Námskeið á haust- og vorönn.

Umsjón:

Sonja Ólafsdóttir og Áslaug Guðmundsdóttir