Karfan er tóm.
- Styrktarfélagið
- Æfingastöðin
- Reykjadalur
- In English
Æfingastöðin og Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) bjóða upp á opna fræðslu fyrir foreldra, aðstandendur og öll sem hafa áhuga á tölvuleikjum, rafíþróttum og öryggi barna á netinu.
Á tímum þar sem börn og ungmenni verja sífellt meiri tíma í stafrænum leikjum og samskiptum er mikilvægt að foreldrar og leikmenn sjálfir hafi aðgang að gagnlegri þekkingu og verkfærum. Þessi fræðsla snýr að netöryggi og stafrænum samskiptum í leikjaumhverfum eins og Roblox, Discord og Twitch – með það að markmiði að efla kunnáttu og færni ungra leikmanna og aðstandenda þeirra.
Viðburðurinn er hluti af samstarfsverkefni Æfingastöðvarinnar og Rafíþróttasambands Íslands (RÍSÍ). Markmið verkefnisins er að auka vitund og þekkingu barna, unglinga og foreldra um örugga netnotkun í tengslum við rafræna tómstundaiðkun og leikjaumhverfi.
Verkefnið hlaut nýverið netöryggisstyrk frá Eyvör NCC-IS sem er hæfnisetur í netöryggi á Íslandi og styður íslenskt samfélag með markvissum hætti við að efla rannsóknir, þekkingu og þróun á sviði netöryggis. Eyvör starfar í nánu samstarfi við evrópska netöryggisstofnun (ECCC) og styður við nýsköpun og framtíðarsýn þar sem íslensk fyrirtæki og stofnanir verða leiðandi á heimsvísu í netöryggi.
Við hlökkum til að sjá ykkur – öryggi og velferð barnanna okkar skiptir máli!
📅 Fimmtudagur 26. júní kl. 17:00
📍 Háaleitisbraut 13, 4. hæð
💬 Frítt inn – en vinsamlegast staðfestu þátttöku á Abler
https://www.abler.io/shop/slf/slf/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NDE1MjQ=