Happdrættismiðinn er í heimabankanum

Sala jólahappdrættismiða Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2019 er í fullum gangi. Miðarnir eru komnir í heimabankann en einnig er hægt að kaupa miða í netverslun SLF: https://www.kaerleikskulan.is/products/jolahappdraetti-styrktarfelags-lamadara-og-fatladra-2019

Með kaupum á happdrættismiðanum styður þú við starfsemi Æfingastöðvarinnar sem Styrktarfélagið á og rekur. Þar fá börn og ungmenni sjúkra- og iðjuþjálfun. Þjónustan er fyrir öll börn og ungmenni sem þurfa aðstoð við að bæta færni sína í leik og starfi svo þau geti þroskast, dafnað og notið lífsins.

Happdrættið hefur lengi verið aðal fjáröflunarleið Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.  Allt uppbyggingar- og þróunarstarf félagsins hefur byggst á velvild almennings en sú mikla velvild hefur skipt gríðarlegu máli og gert félaginu kleift að skapa þá umgjörð sem það starfar við í dag.