Iðjuþjálfi - fjölbreytt starf á Æfingastöðinni

Æfingastöðin auglýsir stöðu iðjuþjálfa lausa til umsóknar. Æfingastöðin er miðstöð þjónustu og þekkingar í hæfingu og endurhæfingu barna og ungmenna. Þar starfa sjúkra- og iðjuþjálfar með það að marki að efla þátttöku barna heima fyrir, í skólanum og úti í samfélaginu.

Árlega nýta um 1100 börn og fjölskyldur þeirra sér fjölbreytta þjónustu stofnunarinnar. Á Æfingastöðinni er veitt fjölskyldumiðuð þjónusta og endurhæfing í formi einstaklings- og hópíhlutunar, ráðgjafar og stuðnings. Meðal verkefna iðjuþjálfa má nefna hópastarf af ýmsu tagi, undirbúning fyrir skólabyrjun og þátttöku í reglubundnum tómstundum, samstarf við aðra sem koma að málum skjólstæðinga okkar, ráðgjöf vegna aðlögunar á umhverfi og verkefnum og íhlutun með aðstoð dýra.

Æfingastöðin er til húsa við Háaleitisbraut 13 í Reykjavík auk þess að útbú er starfrækt í Hafnarfirði.

Við viljum ráða öflugan iðjuþjálfa sem hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu starfi iðjuþjálfunar með börnum og fjölskyldum þeirra, þátttöku í stefnumótun og nýsköpun í starfi. Hvetjum við iðjuþjálfa með reynslu jafnt sem nýútskrifaða til að sækja um.

 

Æfingastöðin er fjölskylduvænn vinnustaður og er vinnuvika starfsfólks í fullri vinnu 36 klst.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Ábyrgð á þeirri iðjuþjálfun sem viðkomandi veitir og mat á árangri íhlutunar

· Mat á færni, veitingu þjálfunar og ráðgjafar

· Skráning og skýrslugerð

· Þátttaka í hópastarfi

· Þátttaka í teymisvinnu

· Þátttaka í fagþróun

 

Hæfniskröfur

· Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi frá Embætti landlæknis

· Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf

· Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

· Íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.

Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar og berist til gunnhildur@slf.is

Nánari upplýsingar veitir

Gunnhildur Jakobsdóttir, yfiriðjuþjálfi gunnhildur@slf.is 695-0272