Jólahappdrættismiðinn er kominn í heimabankann þinn

Sala er hafin á jólahappdrættismiðum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra 2020. Miðana má finna sem valkröfu í heimabanka. Þeir eru einnig væntanlegir inn um lúguna hjá einhverjum á næstu dögum og verða aðgengilegir í netverslun á sama tíma.

Happdrættið hefur verið ein helst fjáröflunarleið Styrktarfélagsins frá upphafi.

Vinningar eru stórglæsilegir og er heildarverðmæti þeirra 36.190.777,- kr.

1. vinningur

Kia XCeed PHEV Urban  að verðmæti  kr. 4.990.777 hver bifreið

 

2.– 6. vinningur.

Gjafabréf í hjólreiðaverslunina Örninn að andvirði kr. 600.000 hver vinningur

 

7.-100. vinningur

Gjafabréf frá Icelandair hótelum að andvirði kr. 300.000 hver vinningur.

  • Gildir sem inneign í gistingar og/eða veitingar á öllum Icelandair hótelunum sem eru 7 talsins og einnig Hilton Reykjavík Nordica, Canopy Reykjavík, Reykjavík Konsúlat, Hótel Eddu, Slippbarnum, Satt, Geira Smart, VOX Brasserie, Aurora Restaurant, Natura Spa og Hilton Reykjavík Spa.

DREGIÐ ER 24. DESEMBER

TAKK FYRIR STUÐNINGINN